Pistlar

 


 

SENDU OKKUR ÞÍNA SKOÐUN Á ÞESSUM PISTLI


Sigurður Guðmundsson
HVERJUM DATT Í HUG AÐ BÚA TIL ÞESSA VITLEYSU?

Ég biðst afsökunar á því að hafa ekki skrifað pistil í langan tíma; ég hef nefnilega verið að djamma geðveikt. En ég lofa að taka mig á í pistlaskrifum. Mig langaði að setja saman lista yfir þær myndir sem mér fannst bestar á árinu 2001 en ég er svo seinn að það eru allir búnir að birta listana sína. Ég ákvað því að safna saman á lista þeim kvikmyndum sem mér fannst vera hvað lélegastar á árinu 2001.

Hannibal
Án efa flottasta myndin á þessum lista; falleg kvikmyndataka, glæsileg sviðsmynd, fínir leikarar, fagmenn í hverju rúmi en það gleymdist eitt - handritið. Þessi mynd fjallar ekki um neitt. Meira segja persónurnar eru flatar og leiðinlegar. Hér er Clarice Starling bara þurr og leiðinleg piparjónka og Hannibal Lecter, sem var heillandi glæpamaður í Silence of the Lambs, er hálfgerð subba í þessari mynd. Ef þú vilt sjá Silence of the Lambs aftur, þá skaltu bara sjá Silence of the Lambs aftur.

Tomb Raider
Hér er ein þumalputtaregla: ekki gera kvikmynd eftir tölvuleik. Og í framhaldi af því, ekki gera kvikmynd til að geta búið til tölvuleik (Episode I - The Phantom Menace; hrikaleg mynd). Söguþráðurinn er svo heimskulegur að ég stóð sjálfan mig að því að hlæja á vitlausum stöðum ... Hundrað milljón dollarar ofan í klósettskálina.

The Watcher
Keanu Reeves sem vondi kallinn? Ég held ekki. Góðir leikarar eiga að leika vonda kallinn - Keanu Reeves á að leika lögguna sem er fráskilinn, drekkur og lifir fyrir starfið. Þetta eru Kevin Costner-áhrifin; þó maður hafi einu sinni leikið hermann (Dances With Wolves) og komist áfallalaust frá því, þá má meður ekki ofmetnast og halda sig geta leikið hvern sem er (Costner sem hermaður í The Postman; Costner sem ekkill í Message in a Bottle; Costner sem lífvörður í The Body Guard; Costner sem ræningi í 3000 Miles to Graceland etc.)

Joe Dirt
David Spade er bara fyndinn þegar hann hefur Chris Farley við hliðina á sér og Chris Farley er dáinn og kemur aldrei aftur. Ergo - David Spade ætti að snúa sér að einhverju öðru.

Dracula 2001
Olympíuverðlaunahafi lélegra mynda. Svo slöpp að ég horfði ekki á nema helminginn af henni. Ég veit ég fer til gagnýnenda-helvítis fyrir að gagnrýna mynd sem ég sá ekki alla, en það verður að hafa það.

Pearl Harbor
Vitleysa ársins; 90 mínútur í ástarþríhyrning sem gekk ekki upp og aðrar 90 mínútur í gegndarlausa slátrun á Bandaríkjamönnum. Ég myndi frekar vilja sjá þýska "scheise"-mynd en sjá þessa mynd aftur.

Planet of the Apes
Ég hef gert stuttmyndir sem innihalda meira vit en þessi mynd (eins og Hasar og gellur (1999) - fékk fína dóma).

Cherry Falls
Þessi var andskoti léleg. Kannski var ástæðan sú að ég hefði séð svo margar myndir sem voru keimlíkar þessari eða það að fólkið sem gerði myndina vissi einfaldlega ekki hvað það var að gera. Svo vond að ég sendi bréf til framleiðandans, Columbia-Tristar.

15 Minutes
Mynd sem ætlaði sér að gagnrýna ódýrar kvikmyndir sem sýna tilgangslaust ofbeldi en breyttist í nákvæmlega það sem henni var ætlað að gagnrýna.

Harry Potter and the Philosopher's Stone
Kvikmynd sem var gerð til að fá fleiri börn til að lesa bækur!? Er ég eini maðurinn sem tekur eftir kaldhæðninni? Ef við viljum að börnin okkar lesi meira, hættum að gera kvikmyndir. Þessi mynd var bara gerð til að græða pening. Innantóm og sálarlaus.

Þar er það komið, gott fólk. Minn listi yfir lélegustu myndir ársins 2001 kominn á netið. Kannski finnst sumum listinn koma full seint - menn byrjaðir að plana árið 2002 og svoleiðis - en þetta er svottan vinna að velja 10 lélegustu myndir ársins. Það hefðu getað verið 100 myndir á þessum lista. Bandaríkjamenn gera nefnilega mjög margar lélegar myndir árlega. Í Hollywood eru menn í fullri vinnu við að búa til lélegar kvikmyndir og hafa það reyndar að ævistarfi að gera lélegar kvikmyndir (s.s. Rodney Dangerfield; James Belushi; Sean Young; Tom Berenger; allt leikaraliðið úr Friends; Whitney Houston o.fl.). Það var því af nægu að taka.

Á næstunni ætla ég að slappa aðeins af í djammlífinu og reyna að skrifa fleiri pistla. Ég lofa.