Pistlar

 



Sigurður Guðmundsson
AF HVERJU FÉKK COYOTE UGLY EKKI TILNEFNINGU TIL ÓSKARSVERÐLAUNA?

Um daginn voru tilnefningar til Óskarsverðlauna tilkynntar. Gladiator fékk 12 tilnefningar og einhverjar smærri listrænar myndir skiptu með sér restinni. Þetta er ekki fréttnæmt. Það sem vakti hins vegar áhuga minn var sú staðreynd að kvikmyndin Coyote Ugly fékk ekki eina tilnefningu. Það fannst mér ósanngjarnt. Ég myndi jafnvel ganga svo langt að kalla það hneyksli.

Coyote Ugly er stórkostleg kvikmynd; blanda af skemmtilegri ástarsögu og atriðum með ungum stelpum sem dansa hálfnaktar á barborði meðan þær hella bjór yfir sig og gesti barsins. Minnir mig nokkuð á Guðföðurinn; stórkostlegt handrit, styrk leikstjórn David McNally og framúrskarandi tæknivinna. Og Óskarverðlaunaakademían ákveður að hunsa myndina. Ekki ein tilnefning. "Látum frekar kínversku myndina fá 10 tilnefningar" hefur akademían hugsað með sér.

Þetta er svosem skiljanlegt í sögulegu samhengi. Mörg af stærstu nöfnunum í Hollywood hafa seint eða aldrei fengið Óskarsverðlaun; Alfred Hitchcock fékk aldrei Óskar, Stanley Kubrick ekki heldur og Steven Spielberg þurfti að bíða 20 ár eftir sínum. Svona hagar akademían sér og þetta er eitthvað sem David McNally, Piper Perabo og Tyra Banks þurfa að læra að sætta sig við.

25. febrúar 2001