Pistlar

 


SENDU OKKUR ÞÍNA SKOÐUN Á ÞESSUM PISTLI

Höfundur:
Ragnar Trausti Ragnarsson,
nemi í Kvennaskólanum og kvikmynda-
áhugamaður



Ragnar Trausti Ragnarsson

SUNDANCE KVIKMYNDAHÁTÍÐIN

Sundance kvikmyndahátíðin hófst 15. janúar sl. og er nú í fullum gangi. Þetta er ein stærsta og merkilegasta kvikmyndahátíð í heimi. Park borg í Utah fyllist af kvikmyndum, fólki, stjörnum, upprennandi leikstjórum og öðrum þekktum og óþekktum aðilum í kvikmyndabransanum. Margar frægar og vel heppnaðar myndir hafa komið frá þessari hátíð og margir góðir leikstjórar og gott fagfólk hefur unnið sér frægð með því að hafa tekið þátt í Sundance kvikmyndahátíðinni. Má þar nefna Quentin Tarantino (Reservoir Dogs), Robert Rodriguez (El Mariachi) og Coen-bræður (Blood Simple). Einnig hafa myndir á borð við Usual Suspects og Memento vakið athygli á hátíðinni.

Því er ekki furða að maður vilji fylgjast með hvaða myndir eru sýndar á hátíðinni og hvaða myndir hljóta mest lof gagnrýnenda. Ekkert er eins spennandi fyrir upprennandi leikstjóra og að fá myndina sína sýnda í kvikmyndahúsi. En það eru ekki aðeins upprennandi leikstjórar sem sækja hátíðina. Nú taka þátt t.d. Oliver Stone og Ed Solomon.

Hér á eftir verða taldar upp nokkrar myndir sem gætu náð langt:

Levity
Frumsýningarmynd hátíðarinnar er í leikstjórn Ed Solomon. Myndin fjallar um Manuel sem leikinn er af Billy Bob Thornton. Manuel er dæmdur morðingi sem er laus eftir 22 ára veru í fangelsi vegna morðs á unglingi sem hann framdi meðan á bankaráni stóð. Manuel ákveður að leita sér sáluhjálpar með því að tala við prest sem leikinn er af Morgan Freeman. Manuel finnur síðan systur fórnarlambsins, sem þekkir Manuel ekki.

Comandante í leikstjórn Oliver Stone er heimildarmynd um Fidel Castro. Sagt er að myndin sýni ótrúlega mynd af þessum merka pólitíska einræðisherra.

People I Know í leikstjórn Dan Algrant fjallar um Eli Wurman sem leikinn er af Al Pacino. Eli er fréttamaður sem fylgist með leikkonu sem leiðir hann út í heim eiturlyfja og drunga.

The Cooler í leikstjórn Wayne Kramer fjallar um Bernie Lootz sem leikinn er af William H. Macy. Bernie er haldinn krónískri óheppni og er ráðinn í spilavíti vegna þess að óheppni hans smitar út frá sér. En þegar hann hittir Natalie fara hlutirnir að snúast honum í hag.

The Maldonado Miracle í leikstjórn Salma Hayek, sem er fyrsta mynd hennar. Hún fjallar um prest sem leikinn er af Peter Fonda og býr í smábænum San Ramos. Efnahagur bæjarins er að falla og fólk að flytja burt. En þegar kona sver að hún hafi séð blóð drjúpa úr auga Jesú styttu bíður fólk með að flytja og verður bærinn trúarlegur ferðamannastaður.

Rhythm of the Saints í leikstjórn Sarah Rogacki fjallar um 15 ára gamla stelpu sem er býr í New York og er lögð í einelti í skóla og ákveður að grípa til svartagaldurs og leggja álög á skólafélaga sína.

Alls verða um sextíu myndir sýndar á hátíðinni.

Höfundur er nemi í Kvennaskólanum.