Pistlar

 


SENDU OKKUR ÞÍNA SKOÐUN Á ÞESSUM PISTLI



Ragnar Trausti Ragnarsson

KVIKMYNDIR Á ENDA VERALDAR

Hver hefur ekki heyrt besta vin sinn segja að hann hafi farið á magnaða mynd um daginn og hvatt þig til að sjá hana, og svo loks þegar þú ferð á hana þá er myndin ekkert sérstök. Hvernig stendur á þessu. Ég hef dottið inn á heimspekilegar hugsanir og spáð í það hvernig við dæmum kvikmyndir. Hvað gerir góða bíómynd góða og hvers vegna finnst okkur sumar vera lélegar? Mér finnst Saving Private Ryan vera mögnuð mynd enda á Steven Spielberg heiðurinn af henni. Ef ég hefði nú séð Saving Private Ryan og ekki vitað hver leikstýrði henni, síðan litið aftan á hlustrið og séð að Christopher Mel væri leikstjórinn, finndist mér hún þá jafn góð? Spurningin er hvort við tengjum myndirnar frekar við leikstjórana en gæði myndarinnar.

Til eru myndir sem eru algjörar ruglmyndir. Svo svakalega steiktar að medium rare væru nóg. Myndir eins og Zoolander, Night at the Roxbury´s, Corky Romano, Mafia og svo mætti lengi telja. Mér finnst margar af þessum rugl myndum vera allt í lagi, þær hafa húmor. En sumum finnst þessar myndir vera algjört rusl. Berum saman myndina Zoolander og Braveheart. Hvor finnst þér vera betri mynd. Braveheart er eflaust svarið. En hvers vegna. Við vitum að Zoolander á að vera ruglmynd með yfirdrifnum húmor og fáranlegum söguþræði. Myndin var auglýst þannig. Þannig að þegar við sjáum hana þá er hún allt í lagi. Hefði Zoolander verið auglýst öðruvísi, t.d. auglýst sem dramatísk spennumynd, þá hefðum við orðið fyrir vonbrigðum. Þá hefði myndin verið rusl.

Þegar öllu er á botnin hvolft snýst þetta þá allt um auglýsingarnar. Hefðu Jaws eða Star Wars orðið svona frægar og álitnar svona góðar ef engar auglýsingar hefðu verið gerðar? Hvað segið þið? Eru Star Wars myndirnar svona rosalega góðar í raun og veru, eða er okkur sagt að þær séu góðar og við kaupum það? Við kaupum það svo mikið að við þorum ekki að hafa skoðun á myndinni.

Hefði Saving Private Ryan verið tekin upp öðruvísi hefði hún verið jafn góð? Nei eða já. Eflaust. Góðar myndir eru þá myndir sem eru auglýstar vel, leikstýrt vel, þær skarta frægum leikurum og kvikmyndatakan og tónlistin er góð. Eru þá Charlie Chaplin myndirnar góðar. Ekki samkvæmt þessari formúlu, Chaplin myndirnar eru þá algjört rusl á okkar mælikvarða. Hefði Saving Private Ryan verið jafn vinsæl fyrir 80 árum. Því er erfitt að svara.

Vangaveltur eru ágætar en ég er búinn að komast að því að það er svo margt annað sem spilar inn í hvort okkur finnst myndir góðar eða ekki. Maður sjálfur getur verið í tilfinningalegu ólagi þegar maður horfir á einhverja mynd og haft allt aðra skoðun á myndinni en ef maður hefði ekki verið í ólagi tilfinningalega. Við tökum kannski ekki eftir því en kvikmyndir spila stærri þátt í lífi okkar og kvikmyndir stjórna meira lífi heimsins en við höldum. Spáið í því.

Ragnar Trausti Ragnarsson
er nemi í Kvennaskólanum og kvikmyndaáhugamaður