|
Ragnar Trausti Ragnarsson
QUENTIN TARANTINO
Sundance
kvikmyndahátíðin er fastur liður ár hvert í
Bandaríkjunnum en árið 1980 stofnaði Robert Redford
Sundance Institue sem hafði það markmið að styðja við
bakið á ungum og upprennandi kvikmyndagerðarmönnum.
Svo eftir nokkurn tíma var Sundance-kvikmyndahátíðin
sett á laggirrnar. Einn af þeim fyrstu sem vakti
athygli á þessari hátið var Quentin Jerome Tarantino.
Quentin fæddist árið
1963 í borginni Knoxville sem er í Tennessee. Hann var
skírður Quint í höfuðið á persónu Burt Reynolds, í
myndinni Gunsmoke. Hann féll fyrir kvikmyndum og fór
brátt að láta sig dreyma um frægð og frama.
Hann hætti í
framhaldsskóla og byrjaði að vinna á videoleigu til
þess að geta kynnst kvikmyndum betur. Á meðan hann
vann á leigunni byrjaði hann að skrifa sitt fyrsta
alvöru handrit, sem var Reservoir Dogs. Reservoir Dogs
var kvikmynd sem fólk horfði á með undrun og spurði
sig að því hver Quentin Tarantino væri. Nú loksins
hafði draumurinn ræst hjá snillingnum. En Quentin
hafði ekki áhuga á að gera Hollywoodmyndir. Hann hafði
áhuga á að gera myndir eins og hann langaði til að
gera og hafa gaman af. Svo seinna kom önnur mynd sem
markaði tímamót í kvikmyndasögunni, já ég leyfi mér að
segja tímamót. Myndin var að sjálfsögðu Pulp Fiction
sem var ótrúlega vel heppnuð. Quentin fékk verðlaun
fyrir besta handrit á Cannes og fleiri verðlaun fylgdu
í kjölfarið. Pulp Fiction er nú orðin ein af frægari
myndum sögunnar.
Quentin Tarantino
hefur alltaf haft gaman af því að gera myndir sem
vakið hafa athygli, hann notar mikið svartan húmor og
leikur sér með handritið. Torkennilegar persónur og
oft á tíðum söguþráður sem maður botnar ekki alltaf
mikið í, einkennir myndir hans. En maðurinn er
snillingur á sínu sviði og á það vel skilið að vera
titlaður einn af frumlegustu og bestu leikstjórum 20.
aldarinnar. Hann gerir ennþá myndir sem eru alltaf
eins og byrjendamyndir í útliti. Þær eru það ekki en
einhvern veginn líta þær þannig út. Það er voða lítill
Hollywood glamúr yfir þeim.
Eftir áramót kemur
loksins mynd eftir Quentin en síðasta mynd sem hann
leikstýrði var Jackie Brown. En Quentin sagði að
Jackie Brown hefði í raun verið framhald af Pulp
Fiction, hún hefði allavega verið framhald af Pulp,
því Quentin byggði handritið á annari sögu, sá sem
skrifaði þá sögu var sá sami og skrifaði Get Shorty.
Myndin sem er
væntanleg ber nafnið Kill Bill og á Uma Thurman að
vera stjarnan í myndinni en Uma lék einmitt í Pulp
Fiction. Quentin segir að myndin eigi ekki að vera
neitt framhald af Pulp Fiction, þetta eigi að vera
einhversskonar kvennasaga. Hvað hann meinar með því
hef ég ekki hugmynd um. En ég pikkaði viðtal við hann
á netinu þar sem hann gefur manni nokkuð gott comment
um það hvort hvort hann sé að fara að gera bíó fyrir
peningana.
“I'm not doing it for
money," he pointed out, "and by doing my own movie my
own way, I can [be like] Stanley Kubrick — he never
did a movie to stay hot, and [until] his last movie
his fans were waiting for them. The audience can get
smaller and smaller [or] bigger and bigger, but my
things are my things."
Hann segist vera eins
og Stanley Kubrick, en hvað með það ég ætla að telja
upp þær myndir sem hann hefur leikstýrt. Reservoir
Dogs (1992), Pulp Fiction (1994), Four Rooms (1995) og
nú síðast Jackie Brown (1997). Einnig hefur hann
skrifað, leikið og framleitt nokkrar myndir. Þar á
meðal lék hann lítið hlutverk í Desperado og skrifaði
handritið að Dusk til Dawn.
Þó Quentin sé góður
þá eru ekki allir sem eru með honum í liði. Quentin
Tarantino hefur verið lögsóttur fyrir að hella vatni
yfir mann á kaffihúsi og mátt þola ýmsar aðrar
uppákomur gegnum árin. Hann er þrátt fyrir það góður
leikstjóri þó ekki hafi mikið sést til hans
undanfarið. En ef maðurinn hefur setið sveittur fyrir
framan pappírinn í 4 ár þá ætti handritið að vera gott
og myndin þar af leiðandi líka. En hver veit.
Ragnar
Trausti Ragnarsson
er nemi í
Kvennaskólanum og kvikmyndaáhugamaður
|