Pistlar

 


SENDU OKKUR ÞÍNA SKOÐUN Á ÞESSUM PISTLI



Ragnar Trausti Ragnarsson

OLIVER STONE & COPPOLA

Oliver Stone

Fyrir nokkru kom út á DVD leikstjóraklipping á mynd Olivers Stone JFK. Mig langaði til að fjalla aðeins um Oliver Stone því þessi frábæri leikstjóri hefur fallið í skuggann vegna þess að hann er talinn vera uppreisnarseggur og umdeildur af ýmsum og einnig lofaður af kvikmyndagerðarmönnum um allan heim.

Hann er einn af virtustu og mest umdeildu leikstjórum Hollywood og hefur gert margar myndir um amerískt samfélag og myndir sem byggja á sögulegum viðburðum. Má þar nefna ef ti lvill hans frægustu mynd JFK sem fjallar á umdeildan hátt um morðið á Kennedy. Myndin olli miklum deilum í Bandaríkjunum enda sýndi Oliver frá mörgum sjónarhornum samsæriskenningarinnar.

Myndin Malcom X er einnig eftir Oliver. Þar lék Denzel Whasington Malcom af miklum krafti. Víetnam varð stórt umfjöllunarefni í myndum Olivers. Hann gerði myndirnar Platoon og Born on the Fourth of July, þar sem Tom Cruise lék stríðsmann sem snéri heim lamaður. Ein ástæða þess að Oliver hefur gert þessar tvær Víetnammyndir er eflaust sú að hann barðist sjálfur í Víetnam stríðinu. Kannski það hafi verið einhvers skonar syndaaflausn fyrir hann að gera þessar myndir, hver veit. Hann gerði Natural Born Killers sem varð umdeild og sýndi hvernig amerísk siðferðiskennd getur lamað hugsjónir manna.

Oliver er einn af mínum uppáhaldleikstjórum enda hefur hann ekki bara gert myndir sem eru umdeildar heldur hefur hann gert myndir sem gefa okkur innsýn í söguna. Hann hefur leikstýrt, skrifað og einnig leikið í fjölda kvikmynda. Hann skrifaði meðal annars handritið að Scarface og lék hlutverk í myndinni. Síðustu myndir hans Nixon, U-Turn og Any Given Sunday eru allar myndir sem varpa ljósi á ýmislegt í bandarísku samfélagi sem aðrir leikstjórar myndu ef til vill ekki sýna.

Oliver Stone myndi ég segja að væri einn af merkustu leikstjórum Hollywood í dag. Og mynd hans JFK hans besta verk. Hann hefur einstaka þekkingu á stjórnmálum og sögu Bandaríkjanna og gerir myndir sínar kröftugar. Hann var einn af þeim fyrstu til þess að blanda saman litfilmu og svart hvítri við töku eins og sjá má í mynd hans Nixon og skapaði þar með magnþrungin atriði sem maður sér best í myndum hans.

Oliver sýnir í myndum sínum  að allir menn geta gert mistök og enginn er fullkominn, ekki einu sinni ríkisstjórn Bandaríkjanna. "When they look at you, they see what they want to be. When they look at me, they see what they are..." Þessi setning sem kemur í endann á myndinni Nixon, er ein af frægustu setningum í kvikmyndum. Anthony Hopkins sem lék Nixon segir þetta er hann horfir á málverk af Kennedy. Oliver Stone er hér með að lýsa því yfir að Nixon gat aldrei orðið eins og Kennedy, en Nixon þurfti að bera mikið af þeim byrðum sem Kennedy skildi eftir sig.

Ef það er einhver mynd sem þú átt eftir að sjá þá skaltu sjá JFK eða einhverja aðra mynd Olivers Stone því hann mun fylla þig af veruleika en ekki raunveruleika.

Coppola

Nú er í sýningu meistaraverk Francis Ford Coppola, Apocalypse Now sem er stórkostlegt verk. Ástæðan fyrir því að verið er að sýna myndina aftur í kvikmyndahúsum er sú að búið er að bæta 52 mínútum við upprunalegu myndina. En Francis Ford Coppola hefur átt glæstan feril. Hann hefur verið viðriðinn stór kvikmyndaverk og líka smá og lítt áberandi verk.

Francis Ford Coppola fæddist 7. apríl 1977 á Henry Ford sjúkrahúsinu í Detroit, Michigan. Bæði afi hans og amma höfðu flutt frá Ítalíu til Bandaríkjanna. Afi hans eignaðist mörg börn og stofnaði fyrirtæki í Bandaríkjunum. Tónlistarhæfileikar voru í fjölskyldunni og hefur Coppola sagt að mörg atriði í myndum hans, samanber Guðföðurinn, séu tekin úr brotum sem hann hefur upplifað sem krakki og í kringum fjölskyldu sína.

Haustið 1960 gekk Coppola í Kaliforníu háskóla. Hann vonaðist eftir háskólagráðu í kvikmyndagerð. Hann fékk hana og fór og gerði margar áhugaverðar stuttmyndir. Hann hafði ekki mikinn pening á milli handanna og þurfti að lifa á litlu sem engu. Hann gerði sína fyrstu mynd í hálfri lengd og hét hún Nudie. Coppola seldi síðan öðrum kvikmyndagerðarmönnum atriði úr myndinni og græddi hann á því. Coppola útskrifaðist og ný kynslóð kvikmyndagerðarmanna ruddi sér til rúms. Það voru ungir leikstjórar eins og Coppola og komu margir úr kvikmyndaskólum. Þeir fengu nafnbótina "kvikmyndagemlingarnir" vegna ungs aldurs og hversu uppteknir þeir voru af kvikmyndum fortíðarinnar. Þeir voru: Steven Spielberg, John Milius, George Lucas, Brian De Palma og Martin Scorsese. Brautryðjandinn var Francis Ford Coppola sem var ráðinn af Roger Corman til að endurskrifa rússneska vísindafantasíu meðan hann var enn nemandi í kvikmyndadeild Kaliforníuháskóla.

Corman framleiddi síðan fyrstu mynd Coppola, Dementia 13, hryllingsmynd sem hlaut litla athygli. Eftir að hafa leikstýrt nokkrum myndum án teljandi velgengni vann Coppola óskarsverðlaunin árið 1970 fyrir handritið að Patton sem hann skrifaði ásamt Edmund H. North. Velgengni The Godfather tveimur árum síðar fleytti honum síðan í fremstu röð bandarískra kvikmyndagerðarmanna. Coppola nýtti sér stöðu sína til að rétta vinum hjálparhönd og árið 1971 framleiddi hann fyrstu mynd ungs nemanda úr kvikmyndadeild Kaliforníuháskóla. Myndin hét THX-1138 og leikstjórinn var George Lucas.

Coppola átti ekki alltaf góðu gengi að fagna því hann varð gjaldþrota árið 1990 vegna þess að hann notaði mikið af sínum eigin pening í myndir sínar. Apocalypse Now var frumsýnd 16. maí 1979 og vakti hún gríðarlega athygli. Coppola er ekki bara einn af bestu leikstjórum aldarinnar hann er einnig frumkvöðull og hefur átt stóran þátt í því að auglýsa myndir lítt þekktra manna. Hann er snillingur og á engan sinn líkan. Ef þú ert ekki sannfærður þá skaltu kíkja á Apocalypse Now.

Ragnar Trausti Ragnarsson
er nemi í Kvennaskólanum og kvikmyndaáhugamaður