Pistlar

 


SENDU OKKUR ÞÍNA SKOÐUN Á ÞESSUM PISTLI



Ragnar Trausti Ragnarsson

TAKT'N MEÐ ÞÉR

Ég hef lengi verið að velta því fyrir mér hversvegna fólk þurfi alltaf að fara með einhverjum í bíó. Það er eins og það sé einhver regla sem segi það að maður geti ekki farið einn í bíó. Taktu tvo með þér, það er hámark. Ég hef farið einn í bíó og ég er ekki einn um það.

Pör fara oft í bíó. Oft er fyrsta stefnumótið bíóferð. Stelpan kaupir sér aldrei neitt því hún er að passa línurnar. Svo þorir maður ekki að kaupa sér sjálfur nammi því þá heldur hún að maður sé einhver offitusjúklingur. Best er að fara á einhverja hryllingsmynd. Þá heldur hún í hendina á manni og maður er við það að brotna. Resident Evil er örugglega góð mynd fyrir elskendur, þversögn ekki satt. Margir hafa vafalaust farið með kærustunni sinni eða date´inu á einhverja góða spennumynd. Endað síðan á Crossroads vegna þess að stelpan í miðasölunni þekkti kærustuna þína og benti henni á að fara á Crossroads með Britney Spears því hún var svo æðisleg og sýndi svo góða leikhæfileika. Þú situr svo inni í bíóhúsinu og heldur í hendina á kærustunni, og hennar hendi er við það að brotna. Spiluð einhver tónlist sem maður heyrir í lyftu.

Þegar ég fer að hugsa út í það þá er í rauninni engin ástæða til að taka einhvern með sér í bíó. Maður talar við hann í 5 mínútur fyrir utan bíóið. Maður fer nú varla að halda uppi samræðum á miðri mynd. Maður kannski segir eitthvað eins og "þetta var magnað atriði" eða "vá". Ég hefði ekki einusinni sagt, þetta var magnað, við vin minn á Saving Private Ryan, því á þeirri mynd var maður límdur við tjaldið. Síðan kemur hlé og maður flýtir sér að komast fremstur í nammisöluna og þegar hléið er búið og maður er loksins búinn að fá miðstærð af poppi sem maður var búinn að biðja um, þá segir maður við vin sinn "góð mynd maður". Eina góða ástæðan fyrir því að taka vin sinn með sér á bíómynd er sú að maður getur talað um myndina nokkrum dögum eftir að maður er búinn að sjá hana.

Það er í rauninni ekkert slæmt við það að fara með vini sínum í bíó. En þegar maður fer með kærustunni þá sér maður hvað maður á ekki sameiginlegt með henni. Hún vill sjá Britney Spears, en þú vilt sjá John Q. Ég segi bara kaupið miðann farið út að borða og svo í bíó.

 

Ragnar Trausti Ragnarsson
er nemi í Kvennaskólanum og kvikmyndaáhugamaður