|
Ragnar Trausti Ragnarsson
JAMES
BOND
James Bond myndirnar
hafa heillað karlmenn, börn og konur upp úr
skónum. Þessi aðalnjósnari 20. aldarinnar og
einnig 21. aldarinnar hefur vakið hrifningu
áhorfenda hvar svo sem þeir eru í heiminum.
Ekki hefði verið
gerð nein mynd ef ekki hefði verið fyrir hinn
hæfileikaríka fyrrum njósnara Ian Fleming sem er
bókmenntafaðir 007. Vinsældir bókanna og myndanna
má kannski rekja til þess að Ian Fleming var í
raun mjög líkur James Bond. Ian var maður sem
hafði gaman af spennu og framandi stöðum. Hann var
mikill sérfræðingar á gott vín og góðan mat.
Hann hreifst einnig af fallegum konum.
Ian Fleming var ekki
ríkur og hafði verið í sjóhernum um nokkurt
skeið og starfað sem njósnari. Hann keypti lítið
hús á Jamacia eftir að hann skildi við konuna
sína og skýrði það Goldeneye. Hann keypti sér
gullhúðaða ritvél í þeirri von að hann myndi
geta skrifað sína fyrstu skáldsögu. Nafnið á
sögupersónunni, var í raun nafnið á rithöfundi
sem hafði skrifað bók sem hét Birds of the West
Indies og Ian hafði oft með í farteskinu. Fyrsta
bókin sem Ian skrifaði árið 1953 um njósnarann
James Bond hét Casino Royale og vinsældir bókanna
voru ekkert síðri en myndanna sem á eftir komu.
Albert R. Broccoli
fékk þá hugmynd að færa þessa sögupersónu úr
bókunum og á hvíta tjaldið. Í samstarfi við
Harry Saltzman fóru þeir frá kvikmyndafyrirtæki
til kvikmyndafyrirtækis en ávallt var þeim vísað
burt. Stjórnendur fyrirtækjanna sögðu að
kvikmyndin myndi verða of bresk og of klámfengin. En
á endanum fundu þeir fyrirtæki sem vildi taka við
handriti og það var United Artists.
Stjórnarformaður
United Artists lét í hendur Alberts og Harry 1
milljón dollara til þess að gera fyrstu
kvikmyndina, og vonuðust þeir eftir því að myndin
myndi skila inn það miklum gróða að þeir gætu
að minnsta kosti gert eina í viðbót. Myndin sem
hét Dr. No var frumsýnd í október 1962 og eftir
það varð hún goðsögn. Fólk hafði aldrei áður
sest í bíó og upplifað aðrar eins tæknibrellur,
framandi tökustaði og umfram allt njósnara sem
ferðaðist í lúxus farartækjum, náði í allar
fallegustu konurnar og komst framhjá öllum
mögulegum hindrunum. Myndin leit út fyrir að vera
miklu dýrari í framleiðslu en hún var. Sean
Connery sem var lítt þekktur og hafði leikið
aukahlutverk í nokkrum myndum reis upp á
stjörnuhimininn. Albert og Harry stofnuðu
hlutafélag þar sem leikarar og tæknimenn gátu
keypt hlut í myndunum. Margir þeir sömu unnu við
James Bond myndirnar lengi eftir þetta.
Sviðsmyndirnar, nafnalistinn í upphafi myndarinnar
myndarinnar og klipping myndarinnar markaði stór
spor í sögu kvikmyndanna og varð Dr. No
kennslubókardæmi í því hvernig ætti að gera
góða spennumynd.
Ragnar
Trausti Ragnarsson
er nemi í
Kvennaskólanum og kvikmyndaáhugamaður
|