|

|
Ragnar Trausti Ragnarsson
TOLKIEN
OG HRINGURINN EINI
Sú mynd
sem beðið er eftir með mestri eftirvæntingu er
kvikmyndin "Lord of the Rings: The Fellowship of
the Ring" eða Hringadróttinssaga, föruneyti
hringsins. Þetta er saga sem er full af ævintýrum
og fjölbreyttum persónum. Ef fólk skyldi ekki vita
það þá er kvikmyndin byggð á skáldsögu sem var
skrifuð af J.R.R. Tolkien (John Ronald Reuel
Tolkien). Hann var fæddur af enskum foreldrum í
Bloemfontein í Suður-Afríku árið 1892, hann lést
2 september árið 1973 á Englandi. Upphaflega var
Hringadróttinssaga skrifuð á ensku og skapaði
Tolkien heim sem var stútfullur af ævintýrum,
dvergum og álfum. Tolkien skrifaði bókina með
hléum og kláraði að skrifa hana á
stríðsárunum, kringum 1942. Hringadróttinssaga
fór sigurför um heiminn og enda ekki furða því
bókin er stórkostlegt ævintýri.
Bækurnar eru þrjár samtals. En Tolkien skrifaði
upphaflega bók sem bar nafnið Hobbitinn. Sú bók
var leiðarvísir að nýju þjóðfélagi. Hún
fjallaði um dverga orka og álfa, einnig kom
hringurinn fram í hobbitanum. Tolkien var
mikilsmetinn málfræðingur og hann skapaði nýtt
fornt tungumál, lagði því til orð, beygingar og
orðasambönd. Hobbitinn varð kveikjan af bókunum um
hringinn.
Kvikmyndin er væntanleg í kvikmyndahús í desember
og ég er ekki í neinum vafa um það að kvikmyndin
eigi eftir að bera sama ljóma og "Star
Wars" myndirnar gerðu hér forðum. Svipuð
auglýsingamennska og sama eftirvænting í næstu
mynd á eftir að verða staðreynd.
Hringadróttinssaga er "trilogía" 21.
aldarinnar. Það er ekki spurning að myndin verður
löng því sjálf fyrsta bókin er 416 blaðsíður.
Ef einhver mynd á eftir að vekja athygli þá er
það Hringadróttinssaga. Leikstjóri myndarinnar er
ekki af verri kantinum, Peter Jackson, sem er kannski
þekktastur fyrir cult myndir og myndina
"Heavenly Creatures" sem hann fékk
silfurljónið fyrir á kvikmyndahátíð í Feneyjum.
Hringadróttinssaga er mynd sem maður má ekki láta
fram hjá sér fara. Ég skrifa ef til vill meira
þegar ég er búinn að sjá myndina og get borið
hana saman við bókina. En ef þú lesandi góður
ert ekki búinn að lesa bókina þá mæli ég með
því að þú grípir hana á bókasafni og lesir
eða bara gluggir í hana. Ég ætla að enda þennan
pistil á tilvitnun úr bókinni Hringadróttinssögu,
föruneyti hringsins.
Þrjá fá kóngar Álfa í eyðiskóga
geim,
Sjö fá höldar Dverga í hamravíðum sal,
Níu fá dauðlegir Menn, þá hel sækir heim,
Einn fær sjálfur Myrkradróttinn á myrkranna stól
Í því landi Mordor sem magnar skugga sveim.
Einn Hringur ræður þeim öllum, einn skal hann hina finna,
Einn skal hann safna þeim öllum og um sinn fjötur spinna
Í því landi Mordor, sem magnar skugga sveim.
(þýð. Geir Kristjánsson)
Ragnar
Trausti Ragnarsson
er nemi í
Kvennaskólanum og kvikmyndaáhugamaður
|
|