|
Ragnar Trausti Ragnarsson
MÍN
UPPÁHALDS LEIGA
Það
getur verið erfitt að velja sér mynd við hæfi á leigunni.
Sérstaklega þegar maður er búinn að vera að vinna eins og
brjálæðingur alla vikuna og ætlar svo að skreppa á leiguna og leigja
sér mynd og liggja yfir henni á föstudagskvöldi. Þær myndir sem
maður tekur fyrst eftir eru C-klassa myndir sem ekkert er varið í.
Maður ráfar um leiguna í leit að mynd sem virðist áhugaverð,
vandamálið er að maður er annaðhvort búinn að sjá hana eða hún
kemur í sjónvarpinu eftir viku. Það er alltaf ágætt að leigja sér
líka bara mynd sem maður hefur séð áður. Einhverja stórslysamynd er
alltaf gaman að horfa aftur á. Ég get endalaust horft á "Alive".
Hún er týpisk stórslysamynd (flugslysamynd). Ég lendi í því stundum
að vera klukkutíma á leigunni. Ég er kannski með eina mynd í
hendinni en mér finnst hún kannski ekki nógu góð og ég leita að
betri. Ég enda síðan uppi með einhverja sálfræði, drama, spennu-mynd
með píkusöngkonunni Jennifer Lopez. Ég geng síðan að leigu
gúrúinu. Hann spyr mig síðan með lágum tón: ,,viltu eina gamla með".
Ég lít yfir leiguna og vel einhverja í flýti og borga. Það versta er
að maður nær ekki að horfa á gömlu myndina. Maður skilar síðan
spólunum á laugardagskvöldið, fer síðan heim og bíður eftir því
að Disney myndin byrji.
Ragnar
Trausti Ragnarsson
er nemi í
Kvennaskólanum og kvikmyndaáhugamaður
|