Pistlar

 



Ragnar Trausti Ragnarsson

BLÓÐUGIR ÍSLENDINGAR OG VEL SNYRTIR HERRAMENN

Ein af þeim myndum sem nú er í bíó er söguleg ævintýramynd sem ber heitið "The Musketeer" þessi mynd er hlaðin tæknibrellum og hrikalegum áhættuatriðum. Þessi saga hefur verið kvikmynduð oftar en einu sinni og ber að nefna sígilda mynd sem bar heitið "The Three Musketeers" og er sú mynd frá þriðja áratugnum, nákvæmlega frá árinu 1921 og leikstjóri myndarinnar var Fred Niblo. Stjarna myndarinnar og einnig stjarna í Hollywood á tíma þöglu myndanna var Douglas Fairbanks. Ég fór að velta því fyrir mér hvort þessar gömlu sögulegu myndir væru að líta aftur dagsins ljós. Það væri gaman að sjá í bíó sögu Hróa Hattar, sú mynd væri náttúrulega hlaðin aukahlutum eins og skyttumyndin. Svo myndu aðrar miðaldaformúlur bætast í hópinn. Þessar myndir ná góðri fótfestu ef þær eru settar í nýjan hasarmyndarbúning og hlaðnar aukahlutum. Persónulega fannst mér "The Musketeer" vera ansi góð skemmtun. Eftir pælingar um miðalda myndir fór ég að velta því fyrir mér hvort einhver íslenskur leikstjórinn gæti ekki tekið sig til og kvikmyndað flotta Íslendingasögumynd. Sú mynd væri náttúrulega full af yfirnáttúrulegum sverðabardögum og flottum áhættuatriðum. Gísla saga Súrssonar myndi falla vel í kramið hjá íslendingum held ég. Það væri gaman að sjá Ingvar E. Sigurðsson leika Gísla, skeggjaður með laskaðan hjálm og skítugar hendur. Eiríkur rauði myndi reyna að höggva af honum hausinn og síðan myndi Ingvar gera einhverjar þrautir sem myndu minna mann á atriði úr "Skríðandi tígur falinn dreki". Þetta er hugmynd sem mætti líta betur á held ég og því ekki að reyna að selja síðan myndina til Hollywood og gá hvort Ameríkönum finnst skemmtilegra að sjá blóðuga Íslendinga með 10 kílóa sverð heldur en vel snyrta hefðarmenn með járnprik. Kannski þá myndum við loks vinna óskarsverðlaun. Ég held að við myndum eiga það meira skilið en einhver frönsk klámmynd. Það held ég allavega, eða hvað finnst þér?

Ragnar Trausti Ragnarsson
er nemi í Kvennaskólanum og kvikmyndaáhugamaður