74. ÓSKARSVERÐLAUNAAFHENDINGIN 24. MARS 2002

 

FARA AFTUR Á FORSÍÐU
KVIKMYNDIR.COM

 
Heiðar Ásberg Atlason, pistlahöfundur Kvikmyndir.com
Hugleiðingar um Óskarsverðlaunin

Tilnefningar til Óskarsverðlauna fyrir bestu gjörninga í heimi kvikmyndanna árið 2001 eru komnar fram. Spekingar spretta nú fram úr hverju horni til að segja sína skoðun á málinu, hverjir eiga skilið að vinna og ekki síður hverjir eiga slíkt ekki skilið. Síðan er náttúrulega sami hópurinn sem sammælist um að þetta sú nú ansi asnaleg akademía, stór hópur gamalla kalla sem hefur ekki hundsvit á neinu sem viðkemur kvikmyndum. Að vissu leyti má taka undir að þetta sé asnaleg akademía en ekki skrifa ég undir að meðlimir hennar hafi ekki vit á kvikmyndum. Eðlilegt er að menn séu ekki sammála í skoðunum sínum enda er mat á kvikmyndum óhjákvæmilega huglægt en fer ekki eftir einhverri hlutlægri mælistiku. Eitt er þó alveg óumdeilt og það er að allir fylgjast með Óskarsverðlaunahátíðinni hvort sem þeir viðurkenna það eða ekki. Kvikmyndagláp er alþýðusport og allir hafa sína skoðun. Þar sem ég er órjúfanlegur hluti múgsins þá langar mig að skjóta nokkrum tilgátum fram og tippa á sigurvegarana.

Besta myndin
Þetta er náttúrulega flottasti bikarinn. Persónulega myndi ég vilja sjá The Lord of the Rings í fyrsta sæti, að mínu viti langbesta mynd síðasta árs. Hvort akademían er mér sammála efast ég hins vegar um. Sennilega eru meðlimir akademíunnar of fastir í sínum skorðum til að velja myndina í fyrsta sætið, myndin er hugsanlega of mikið fyrir þá. Kannski á næsta ári eða því þarnæsta þegar þeir eru komnir betur inn í heim J.R.R. Tolkien. A Beautiful Mind verður einnig að teljast líkleg enda er myndin einstaklega fögur og vel gerð. Ekta mynd sem fylgir Óskarsverðlaunaformúlunni nokkuð nákvæmlega. Ekki skemma Golden Globe verðlaunin fyrir. In the Bedroom er ein best leikna mynd síðustu ára en þó hef ég þá tilfinningu að hún geti ekki tekið titilinn sem besta myndin. Myndin er góð en það vantar eitthvað. Gosford Park er mjög vel gerð mynd og alveg stórskemmtileg á köflum. Handritið er gott en að litlu leyti gallað og myndin er af þeim sökum dálítið ruglingsleg á köflum. Því tel ég hana ekki eiga séns á titilinum sem besta mynd ársins 2001. Persónulega fannst mér Moulin Rouge ekkert sérstök en ég virðist þar vera í mjög fámennum hóp því allmargir misstu vatn yfir þeirri mynd. Vonandi á ég mér nokkra fylgismenn innan akademíunnar svo ég þurfi ekki að tala mjög illa um þá menn sem þar sitja. Baráttan stendur semsagt á milli The Lord of the Rings og A Beautiful Mind - veðja ég á þá fyrrnefndu.

Besti leikari í aðalhlutverki
Þarna er Russel Crowe - "the Hollywood bad boy" - alveg sjóðandi heitur. Crowe vann titilinn í fyrra og gæti orðið þriðji leikarinn frá upphafi til að taka styttuna tvö ár í röð. Crowe fékk Golden Globe fyrir leik sinn í A Beautiful Mind sem telja verður ákveðna vísbendingu um velgengni í Óskarnum. Crowe stendur sig náttúrulega frábærlega í hlutverki klikkaðs stærðfræðings og akademían gæti gert verri hluti en að láta Crowe fá styttuna aftur. Mitt atkvæði fer hins vegar til Tom Wilkinson fyrir hlutverk hans í In the Bedroom. Wilkinson fer hreinlega á kostum, "Stunning Performance" las ég einhvers staðar og tek heilshugar undir það. Enginn skyldi þó afskrifa Denzel Washington fyrir magnaða frammistöðu hans í Training Day. Washington fékk verðlaun fyrir aukahlutverk fyrir nokkru síðan og "the black favorite" er til alls líklegur. Sean Penn og Will Smith eru eingöngu notaðir þarna til uppfyllingar. Það verða nefnilega alltaf að vera fimm tilnefndir.

Besta leikkona í aðalhlutverki
Það er ýmislegt áhugavert við tilnefningar í þennan flokk. Halle Berry er tilnefnd fyrir hlutverk sitt í Monster´s Ball. Einhver laumaði því fram að hún væri fyrsta blökkukonan frá upphafi til að fá tilnefningu sem besta leikkona í aðalhlutverki. Ekki veit ég hvort það er satt en það hljómar ekkert ólíklegt og akademían hefur þar með brotið blað. Ég held hins vegar að blaðið verði ekki alveg rifið að þessu sinni. Berry er lítið meira heldur en sæt, reyndar mjög sæt, en það er bara ekki nóg þó fegurð hjálpi vissulega til í hörðum heimi kvikmyndanna. Judi Dench fékk Óskar fyrir stuttu síðan fyrir aukahlutverk og hefur lítið við annan að gera þó hún standi sig vel í Iris. Nicole Kidman vann Golden Globe fyrir Moulin Rouge og ekki má því afskrifa hana. Persónulega vil ég hins vegar sjá keppnina standa á milli Sissy Spacek og Renée Zellweger. Spacek er ekki ókunnug Óskarnum, fékk verðlaunin árið 1980 og er hreint stórkostleg í In the Bedroom. Spacek verður því að teljast mjög sterkur kandídat. Það kom síðan mjög ánægjulega á óvart að Renée Zellweger skyldi tilnefnd fyrir hlutverk sitt í hinni bráðfyndnu mynd Bridget Jones´s Diary. Akademían hefur hingað til verið talin fullkomlega laus við húmor og hefur gjarnan litið framhjá gamanmyndum og gamanleikurum við útdeilingu verðlauna. Með því að velja Zellweger gæti akademían hækkað verulega í áliti þeirra sem halda að húmor sé ekki boðlegur boðskapur kvikmynda. Zellweger fer á kostum í hlutverki breskrar piparjónku á truflandi tímum í lífinu og fær hiklaust mitt akvæði (þó ég veðji á að akademían kjósi frekar Spacek).

Bestu aukaleikarar
Myndir verða ekki snilldarverk án aðkomu margra góðra leikara. Þar sem mjög fáir fá að vera í aðalhlutverki í hverri mynd þá er akademían með sérstök verðlaun fyrir aukahljólin svokölluðu.

Þar sem ég hef ekki séð allar myndirnar sem eiga tilnefndar stjörnur sem besti leikari í aukahlutverki þá er varla við hæfi fyrir mig að gera þar upp á milli. Þar sem ég hef hins vegar gaman að getraunum þá fer minn peningur á Ian McKellan fyrir The Lord of the Rings. McKellan á líka uppsöfnuð stig frá fyrri árum sem koma honum líklega til góða á þessari hátíð.

Besta leikkonan í aukahlutverki er erfitt pikk. Gosford Park er með tvær konur í framboði (sem er í sjálfu sér ekkert skrýtið þar sem aukaleikararnir skipta mörgum tugum í þeirri mynd); Maggie Smith og Helen Mirren. Báðar standa sig bráðvel en Mirren fellur þó í skugga Smith sem er alveg stórfengleg í sínu hlutverki. Einnig er Jennifer Connelly réttilega tilnefnd fyrir mjög góða frammistöðu í A Beautiful Mind. Burtséð frá öllum Óskarsstyttum þá fær Connelly aukaplús hjá mér fyrir yfirvegaða framkomu á Golden Globe hátíðinni. Þá fór hún í viðtal hjá E! og hélt fullkominni yfirvegun þó stjórnendur þáttarins héldu allan tímann að hún væri sjónvarpsstjarnan Jennifer Garner. Einnig stendur Marisa Tomei sig vel í In the Bedroom en hún verður líklega að láta sér nægja að horfa á stytturnar. Að síðustu er það hin ægifagra Kate Winslet sem sló í gegn í Titanic en hún fær tilnefningu fyrir Iris. Mitt atkvæði fer til Maggie Smith. Hún er einfaldlega svo sannfærandi sem yfirstéttartík að það er ekki hægt að líta framhjá henni.

Aðrar styttur
Af ýmsum ástæðum er mun erfiðara að spá til um aðrar styttur. Vissulega þykir flott að vera besti leikstjórinn eða besti kúrekinn eins og það er víst kallað í dag. Tom Hanks sagði leikstjórann vera lítið annað en kúreki með prik í hendi (hann var að tala um sjálfan sig). Þetta þýðir væntanlega að leikarar eru lítið annað en beljur á beit. Sjái akademían ekki sóma sinn í því að velja Lord of the Rings sem bestu myndina - sem er náttúrulega sjálfsögð krafa - þá mun Peter Jackson fá leikstjóraverðlaunin en útilokunaraðferðin og heilbrigð skynsemi segir okkur að myndin muni fá a.m.k. önnur af þessum tveimur verðlaunum. Ef ekki Peter Jackson, þá veðja ég á Robert Altman fyrir Gosford Park eða jafnvel Ron Howard fyrir A Beautiful Mind. Báðir þykja þessir menn miklir listamenn og það kom vel í ljós á síðasta ári. Ef akademían er full af þjóðerniskennd líkt of restin af Ameríku þá á Ridley Scott einnig séns fyrir Black Hawk Down. Ekki útilokað en frekar fjarlægt. Ég hef ekki séð Mulholland Drive og á því erfitt með að dæma um leikstjórnina hjá David Lynch. Hann er hins vegar bráðsnjall kúreki, það vita nú allir.

Gott handrit er aðall góðrar myndar. Því fá handritshöfundar tvenn verðlaun á hverri hátíð; ein fyrir handrit byggt á áður birtu efni og önnur fyrir frumsamið handrit. Í fyrri hópinn verða Fran Walsh, Philippa Boyens og Peter Jackson, handritshöfundar The Lord of the Rings, að teljast mjög líkleg til afreka. Handritið er mjög gott. Sumir hafa viljað halda því fram að handritið sé ögn gallað þar sem það sé mikið um ræðuhöld en lítið um samræður í myndinni. Þetta er að vísu réttileg ábending (hjá Agli Helgasyni) þó ekki vilji ég kalla þetta galla heldur frekar að halda sögunni réttri. Myndin verður að lýsa sannfærandi lífinu í heimi Tolkiens. Ég hef margsinnis komið þangað og hobbitar eru mikið í ræðustíl í því undralandi. Hérna er þó sama hættan á ferð og er með bestu myndina, kannski hefur akademían ekki þroska til að velja sögu Tolkiens sem sigurvegara. Ef svo fer, þá kemur Akiva Goldsman sterklega til greina fyrir A Beautiful Mind sem og Rob Festinger og Todd Field fyrir In the Bedroom. Af þeim tveimur er Goldsman líklegri til afreka. Einnig er handritið að Shrek alveg stórgott en ég fílaði hins vegar ekki Ghost World. Ekki spyrja af hverju.

Verðlaun fyrir besta frumsamda handritið fer til Guillaume Laurant og Jean-Pierre Jeunet fyrir Amelie. Það þarf ekki að fjalla meira um það, stundum er sannleikurinn bara svo augljós.

Dreifing verðlauna mun ekki verða jöfn á þessari Óskarsverðlaunahátíð frekar en fyrri árin. Hátíðin byggist ekki á fjarlægum hugmyndum um jöfnuð, heldur skipta gæði einfaldlega mestu máli til að fá Óskar. Sá besti vinnur. Hátíðin líkist því meira hugmyndum um einstaklingsframtak heldur en nokkru öðru. Að líkindum mun keppnin um stytturnar vera nokkuð jöfn á milli The Lord of the Rings og A Beautiful Mind framan af kvöldi, en sú fyrri mun þó verða ótvíræður sigurvegari hátíðarinnar þegar allar styttur hafa verið afhentar. Kemur þar til að "litlu" stytturnar svokölluðu munu hópast í kringum hobbitana. Er það mitt óbrigðula mat að The Lord of the Rings muni fá alls átta styttur en A Beautiful Mind verður í öðru sæti með fjórar styttur. In the Bedroom og Gosford Park munu fá tvær styttur hver en Moulin Rouge aðeins eina.

Því miður mun Harry Potter and the Sorcerer´s Stone ekki fá neina styttu. Myndin kom einfaldlega út á röngum tíma til þess að fá Óskar. The Lord of the Rings er að mörgu leyti í sama hópi og Harry Potter og keppir því um sömu stytturnar. The Lord of the Rings er einfaldlega miklu flottari en Harry Potter og mun því sigra á öllum vígstöðvum sem galdrastrákurinn er tilnefndur. Ekki mun þetta þó hafa nein sérstök áhrif á minjagripasöluna sem hefur gert Harry Potter að mestu peningamaskínu allra tíma. Ég held því að framleiðendum Harry Potter sé alveg sama. Þeir eiga billjón dollara og er því líklega nokkuð sama um einhverja pínulitla styttu.