|
DESEMBER
2002
JAMES BOND
MISSTÍGUR SIG
RÉTT
ER AÐ BENDA LESENDUM SEM EKKI HAFA SÉÐ
MYNDINA "DIE ANOTHER DAY" Á AÐ ÝMISLEGT
UM SÖGUÞRÁÐ MYNDARINNAR KEMUR FRAM Í PISTLINUM
James Bond er
ákaflega heillandi persóna sem á sér marga
aðdáendur. Konur dýrka hann - maðurinn er
náttúrulega geðveikur sjarmi. En karlar dýrka hann
líka - ég held að það sé mikið til öfund yfir
líferni mannsins - fagrar konur, spilavíti, bílar
og tæknidót, framandi lönd og ögrandi verkefni -
og hann vinnur alltaf. Það er akkúrat þessi
formúla sem dregur spennta gesti í kvikmyndahús í
hvert sinn sem Bondliðið hefur sett saman nýja
afurð, nýjar hættur sem steðja að heiminum og
aðeins James Bond getur komið til bjargar.
Spenningurinn er magnaður upp alls staðar í kringum
okkur og fólk setur sig í stellingar.
Mögulegt er að
spenningur síðustu mánaða yfir Íslandsvininum Die
Another Day hafi gert það að verkum að væntingar
mínar urðu miklar fyrir þessa mynd, jafnvel of
miklar. Hugsanlegt er að þátttaka Íslands í
myndinni hafi ýtt undir enn meiri væntingar en ella
hefði verið. Allt að einu er fallið hrikalega
hátt. Die Another Day er í mínum huga gríðarleg
vonbrigði. James Bond hefur loksins misstigið sig.
Í samræmi við
breytta heimsmynd er óvinurinn Norður-Kórea. Það
þurfti í sjálfu sér ekki að koma á óvart. James
Bond hefur ávallt ástundað pólitískan
rétttrúnað sem sést best á þróun á
óvinasveitum hans. Í fyrstu voru það eingöngu hin
illu Sovétöfl og leynisamtök innan þeirra sem hann
áttist við en síðar fléttuðust ýmis
Evrópuríki röngum megin Járntjaldsins inn í
sögurnar. Hin síðustu ár hefur þetta verið mun
óvissara og erfiðara að vita óvinina fyrirfram,
m.a. hefur þurft að notast við illgjarna
fjölmiðlamenn til að gera óvininn nógu ægilegan.
En eftir hamfarir síðasta árs mátti vel búast
við að hið illa möndulveldi Norður-Kórea yrði
notað sem grýla þessarar myndar.
En yfir að sögunni
sjálfri. Byrjunin var mjög efnileg. Bond lenti í
miklum hrakningum á ferð sinni um hið hrjáða
Asíuríki Norður-Kóreu og var tekinn til fanga.
Eftir rúmlega eins árs dvöl slapp Bond hins vegar
úr prísundinni með skiptum á föngum en var um
leið grunaður um að hafa brotnað undir pyntingum
og lekið mikilvægum upplýsingum. Í framhaldinu var
Bond útskúfaður af bresku leyniþjónustunni og
sviptur drápsleyfinu sem honum er svo kært. En
njósnarinn lætur ekki bugast við þetta mótlæti
heldur brýst út úr sjúkraskipi og flýr til Hong
Kong. Þaðan liggur leiðin til Kúbu þangað sem
ákaflega vondur maður hefur leitað sér lækninga
en Bond telur að þessi maður geti hjálpað honum
að ná aftur fyrra líferni. (Ég tók jafnframt
eftir því að Bond drap nokkra í leyfisleysi.)
Frammistaða Bond á
Kúbu og í skylmingaklúbbi í London færir hann
aftur heim í bresku leyniþjónustuna. Þá bregður
hinum óviðjafnanlega uppfinningamanni Q fyrir og
þá fyrst fer ég að hristast af skilningsleysi.
Þetta má ekki skilja sem svo að John Cleese höndli
hlutverk Q ekki vel, heldur er hugmyndin fáránleg -
ósýnilegur bíll? Hvað kemur eiginlega næst? Well,
þaðan berst leikurinn í íshöll geðveiks manns á
Íslandi, nánar tiltekið á Jökulsárlóni í
Austur-Skaftafellssýslu. Ok, það var semsagt
íshöll sem kom næst.
Eigandi
íshallarinnar er brjálaður maður sem á
yfirborðinu virðist hafa brotist til óheyrilegra
auðæfa með því að finna demantanámu á
Íslandi. (Og við sem héldum allan tímann að það
væri gullskip hérna.) Hérna fer mann fyrst að
gruna að eitthvað einkennilegt sé á seyði. Á
samkundu í íshöllinni kemur fram að
brjálæðingurinn hefur útbúið geimspegil -
einskonar auka sól - sem getur búið til ljós án
neinnar fyrirhafnar. Þetta hlýtur að eiga að nota
í hernaðarlegum tilgangi enda leggur enginn svona
mikið á sig til að hjálpa sveltandi heimi að
rækta korn.
Eftir
bílaeltingaleik inni í íshöllinni, æsilega senu
á vélsleðum og brimbrettasiglingu á nýbráðnum
ísjaka sem varð hinni nýju sól að bráð berst
leikurinn aftur til Norður-Kóreu. Núna á að valta
yfir landamærin og taka suðurhlutann. Auðvitað á
spegillinn góði að hjálpa til við þetta.
Lokaatriðið gerist að mestum hluta um borð í
flugvél og síðan þyrlu. Í mínum huga gerir
lokasena James Bond í þessari mynd lestar- og
þyrluatriðið í Mission Impossible að hreinum
barnaleik.
Ekki að ég vilji
spilla endinum fyrir þeim sem ekki hafa séð myndina
en sem betur fer fyrir heiminn tekst Bond að bjarga
vinum vestrænnar menningar í Suður-Kóreu frá
óvinum sínum í norðri. Bond bjargar öllu á
endanum.
Þrátt fyrir mikinn
og bjartan geimspegil liggur myrkur yfir þessari
mynd. Eina týran er líklega frammistaða
illmennisins Gustav Graves sem Toby Stephens leikur.
Einnig eru stöku brot sem eru í lagi að mínu viti.
Bandaríski njósnarann Jinx er túlkaður með
ágætum af óskarsverðlaunahafanum Halle Berry. Hún
stendur sig í þessari mynd enda ætti að vera
nokkuð auðvelt að fá góða dóma þegar
gagnrýnendur taka aðeins eftir umbúðunum.
Þegar ég hugsa um
Die Another Day er heildarmatið mjög dapurt. Myndin
er óþægileg að því leyti að yfirleitt hef ég
getað skrifað undir allflest af því sem James Bond
hefur gert í sínum myndum. Vissulega hafa ýmis
atriði verið á mörkum þess ómögulega en
yfirleitt hef ég sætt mig við brellurnar sama
hversu ótrúlegar þær hafa verið.
Rökstuðningurinn hefur alltaf verið sá sami;
"þetta er nú einu sinni James Bond".
Hérna er hins vegar farið langt yfir strikið og
afurðin eins konar samsuða af Matrix og Superman í
bland við gamla Bondtakta.
Ég var í vondu
skapi þegar ég kom af myndinni og gremjan hefur
vaxið síðustu daga eftir því sem ég hef hugsað
meira um myndina. Smávægilegan hluta af ánægju
minni tók ég á nýjan leik þegar ritstjóri
Kvikmyndir.com féllst á að birta skoðun mína á
Die Another Day þrátt fyrir að skoðun gagnrýnanda
þeirra sé allt önnur. Þetta er til merkis um
trúverðugleika og skoðanafrelsi.
Í stað þess að
ergja mig meira verð ég að láta mér nægja að
biðla til eigenda vörumerkisins James Bond að hugsa
sig aðeins um áður en næsta mynd verður
framleidd. Mín tillaga er að handritshöfundurinn
verði rekinn, leikstjórinn látinn fara og alvöru
hugmyndasmiðir látnir taka við ferðinni. Ég býð
mig fram.
Heiðar
Ásberg Atlason,
lögfræðingur og pistlahöfundur
|