|
14.
FEBRÚAR 2002
IN THE BEDROOM
Mjög stutt lýsing
á In the Bedroom gæti verið að myndin falli
í þann flokk að vera sýnd á Lifetime - Television
for Women. Hugmyndin að baki myndinni er nefnilega
mjög svipuð og liggur að baki mjög mörgum
konumyndum, fjölskyldudrama. Það væri hins vegar
mjög óréttlátt að setja In the Bedroom á þann
einkennilega stall að teljast konumynd því myndin
er alveg stórgóð. Mjög ólík flestum konumyndum
sem sýndar eru á Lifetime.
Myndin gerist í
sjávarþorpi í Maine, nyrst á austurströnd
Bandaríkjanna. Umhverfið er stórkostlegt og minnir
óneitanlega á mörg fögur sjávarþorp á Íslandi.
Gott ef ýmislegt er ekki alveg eins og á
Fáskrúðsfirði sem oft hefur verið nefndur
fegursti staður á Íslandi, perla Austfjarða. Í
stuttu máli er sagan sú að háskólastrákurinn
Frank verður ástfanginn af fráskilinni tveggja
barna móður. Foreldrar Frank eru ekkert alltof
hrifnir af þessum ráðahag, óttast greinilega að
konan eigi eftir að koma í veg fyrir að strákurinn
fari aftur í skóla. Skoðanir þeirra gömlu hafa
hins vegar lítil áhrif á Frank. Fyrrum eiginmaður
konunnar er mjög ósáttur við að Frank sé genginn
börnum sínum í föðurstað. Hann vill því koma
aftur og endurnýja sambandið. Þegar honum er
neitað gerist hann ofbeldisfullur og Frank er
kallaður til. Þegar Frank reynir að vernda ástina
sína fyrir þessum ofsamanni tekur hann upp byssu og
drepur Frank.
Smábæjalögfræði
verður til þess að morðinginn sleppur út á
tryggingu og merkileg afstaða dómarans í málinu
verður til þess að foreldrarnir sjá ekki annað í
stöðunni en að hann verði laus allra mála innan
fárra ára. Verður harmleikurinn eðlilega til þess
að eyðileggja lífið hjá þessu blessaða fólki.
Þótt ég hafi aldrei - og sem betur fer mjög fáir
- lent í slíkum hörmungum og myndin lýsir þá vil
ég halda því fram að In the Bedroom sé raunsæ á
hvaða áhrif sá harmleikur að missa barn sitt fyrir
morðingjahendi getur haft á venjulegt fólk. Mjög
góð saga, hreint mögnuð mynd og stórkostlegir
leikarar. B+
In the Bedroom hefur
verið tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna. Tom
Wilkinson og Sissy Spacek, sem leika foreldra Frank,
fá bæði tilnefningu til Óskarsverðlauna sem bestu
leikarar í aðalhlutverkum. Engan skal undra því
þau eru bæði alveg frábær. Helst myndi ég vilja
að þau fengju bæði styttu að launum en tar sem
það er e.t.v. óraunhæft þá sætti ég mig við
að Tom fái verðlaun. (Sissy Spacek á nátturulega
styttu frá fyrri tíð) Myndin fær einnig
tilnefningu sem besta kvikmyndin og besta handrit
byggt á áður birtu efni. Að lokum er Marisa Tomei
tilnefnd sem besta leikkona í aukahlutverki enda
stendur stelpan sig afar vel. Marisa hefur greinilega
fengið nokkra tilsögn hjá stjörnunum Tom og Sissy
sem eru eins og áður segir alveg stórkostleg í
sínum rullum.
Heiðar
Ásberg Atlason pistlahöfundur
er lögfræðingur sem stundar
framhaldsnám við University of Miami.

|