HEIÐAR ÁSBERG ATLASON
BÍÓPISTLAR FRÁ MIAMI

 


12. JANÚAR 2002
A BEAUTIFUL MIND
Myndin byrjar í vinalegu skólaumhverfi Princeton háskólans í Bandaríkjunum. Þar kynnumst við Russel Crowe og öðrum fræðingum framtíðarinnar. Crowe er mjög sérlundaður og ekki mikil félagsvera. Crowe á einnig í erfiðleikum með hitt kynið en samskiptaörðugleikar Crowe í garð fallegrar ljósku - og hvernig hann eða einhver vinur hans gæti náð í hana - verður í staðinn kveikjan að nýrri vídd í hagfræði þar sem glufur eru fundnar í kenningar hins stórmerka Adams Smith. Þetta reynist stórkostleg kenning sem fleytir Crowe áfram í hörðum heimi fræðimennskunnar.

Nokkrum árum síðar er Crowe kominn í góða stöðu sem prófessor í stærðfræði auk þess sem hann er í aukavinnu hjá bandaríska hernum. Smám saman fer Crowe hins vegar að klikkast í hausnum og endar á spítala. Kemur í ljós að það sem er að trufla Crowe er að hann sér töluvert af fólki sem aðrir sjá ekki. Reyndar var herbergisfélagi hans í Princeton aldrei meira en hugarburður þótt þeir hefðu alla tíð haldið góðu sambandi eftir að skólanum lauk.

Crowe þolir ekki lyfjagjöfina sem reynist nauðsynleg til að bæla þessar kenndir niður. Í staðinn ákveður hann að "ignora" þessa menn sem ásækja hann stöðugt og reyna að lifa með þessum veikleika sínum. Fer að lokum svo að hann nær góðum tökum á þessum hæl. Það er náttúrulega óþarfi að spilla öllu en myndin endar mjög vel.

Af öðrum helstu leikendum er það að segja að Ed Harris stendur sig með mikilli prýði sem hugarburður Crowe í líki bandarísks leyniþjónustumanns. Eddie, sem ég man ekki hvað heitir í raunlífi en var kallaður "Eddie, the crazy roommate" í Friends, stendur sig líka vel sem og Judd Hirsch og Jennifer Connelly, sem leikur eiginkonu Crowe. Aðrir eru svosem ekki það merkilegir póstar að það taki því að telja þá upp.

Í heildina er Beautiful Mind mjög góð mynd. B.

Heiðar Ásberg Atlason pistlahöfundur
er lögfræðingur sem stundar
framhaldsnám við University of Miami.


 

A BEAUTIFUL MIND verður frumsýnd hér á landi 8. mars 2002.