|
22.
DESEMBER 2001
VANILLA
SKY
Tom
Cruise og Cameron Diaz - ekki alslæm byrjun.
Penélope Cruz, Kurt Russel og Jason Lee hjálpa
síðan til við að gera Vanilla Sky ad mjög
einkennilegri mynd. Það er nú yfirleitt við hæfi
að rekja stuttlega þráðinn þegar hún skoðuð
eftir á. Gallinn er bara sá að ég náði aldrei
þræðinum.
Ég
er nokkuð viss að myndin byrjaði á því að
Cruise svaf hjá Diaz. Síðan fór hann á fætur og
hitti vin sinn Lee og mætti að síðustu alltof
seint í vinnu sína sem útgefandi TV Digest, starf
sem hann erfði frá föður sínum. Þar með
öryggið í minni mínu búið og ég verð að giska
á restina. Cruise var síðar, held ég, með partý
þar sem Cruz mætti með Lee, ég er nokkuð viss um
það. Cruise varð hrifinn af Cruz og fylgdi henni
heim, held ég. Daginn eftir lenti Cruise í
umferðarslysi með Diaz, held ég, og slasaðist
illa, ég er viss um það, varð þunglyndur og sá
eftir það í sömu manneskjunni ýmist Cruz eða
Diaz. En Diaz átti hins vegar að vera látin eftir
slysið, held ég. Cruise drepur síðan Cruz eða
Diaz, ég er ekki alveg viss, og fer í meðferð hjá
Russel sem sálfræðingur eða geðlæknir, ég var
alveg viss um það þangað til í lok myndarinnar,
þá leystist ekkert og allt annað varð enn
óljósara. Í lokin kom draumamaðurinn, sem Cruise
hafði skrifaði undir samning hjá að fara í
svokallað "lucid dream" - held ég. Ég man
ekki nákvæmlega hvernig myndin endaði en hún
endaði örugglega ekki vel.
Ég
hef aldrei á ævinni prófað sýru og hef ekki
ætlað mér að gera slíkt. Ég verð þó að láta
eftir mér þá samlíkingu að líkja reynslunni af
Vanilla Sky við að hafa verið á tveggja tíma
sýrutrippi. Ekki reyna það. Ég vil þó ekki láta
staðar numið án þess að minnast á plúsana eða
plúsinn öllu heldur. Diaz stóð sig alveg stórvel
og sannaði að hún er ekki bara sæt. "Oscar
Winning Performance" hjá Diaz las ég um daginn
og gott ef ég get ekki tekið undir það. Diaz nær
þó ekki að draga myndina alla upp, ég vil aðeins
meira en það. Eflaust munu einhverjir missa vatn
yfir tessari vitleysu en ekki ég. Vanilla Sky fær D
í minni bók.
Viðauki
Vil
ég leyfa mér að koma með eina kenningu um hvers
vegna Tom Cruise lét hafa sig út í svona vitleysu
(hann er reyndar framleiðandi myndarinnar líka en
ég lít fram hjá því þar sem það skemmir
kenninguna). Cruise karlinn er nýskilinn við Nicole
Kidman og er í sárum með aðeins helming fyrri
auðæfa, örfá hús og bara eina þotu. Hann
sárvantaði því peninga og þáði starfið,
þrátt fyrir að hafa ekki skilið þetta vitlausa
handrit. Ekki skemmdi það fyrir Cruise að tvær
bráðmyndarlegar stúlkur voru í stórum hlutverkum
í myndinni og hann fékk að sofa hjá þeim báðum,
held ég - Cruise er jú nýskilinn. Bragðið
heppnaðist hjá honum. Eins og allt sem hans nafn
kemur nálægt þá græðir myndin vel og hann enn
meira en aðrir sem framleiðandi. Sem bónus fær
hann Cruz sem barnapíu, persónulega hefði ég nú
frekar kosið Diaz.
Heiðar
Ásberg Atlason pistlahöfundur
er lögfræðingur sem stundar
framhaldsnám við University of Miami.

|
|