|
13.
NÓVEMBER 2001
OFURSTÖÐIN
TBS
Ég
hef ofsalega gaman af því að horfa á kvikmyndir.
Reyndar hef ég horft á svo margar kvikmyndir um
ævina að það hefur orðið tilefni til þess að
vinir mínir hafi gert grín af vitneskju minni um
myndir sem enginn veit um, nema ég. Vegna þessa
áhuga er ég kominn með nýja uppáhalds
sjónvarpsstöð, TBS Superstation. Stöðin er þessa
dagana með átak í að sýna strákamyndir og
auglýsir því grimmt "Movies for guys who like
movies." Þetta er alveg frábært framtak og
meðal mynda sem ég hef séð undanfarnar vikur eru
Godfather myndirnar, Die Hard myndirnar og Indiana
Jones myndirnar og auðvitað margar fleiri. Það
besta við TBS er þó að ég þarf ekki að borga
neitt fyrir glápið.
Auglýsingatekjur
reka flestar ef ekki allar sjónvarpsstöðvar í
Bandaríkjunum. Aðferð sem Íslendingar eru fyrst
almennilega að kynnast með tilkomu SkjásEins, sem
treystir eingöngu á auglýsingatekjur (og reyndar -
að litlu marki - ölmusu frá góðviljuðum
almenningi). Sumir kvarta reyndar yfir eilífum
auglýsingum í miðjum myndum en ég er farinn að
kunna vel við þessi stuttu stopp. Núna gefst manni
tími til að hlaupa á klósettið í miðjum
málaferlum hjá Tom Cruise og að poppa á milli
þess sem Bruce Willis er svalur og skýtur vonda
kalla. Að síðustu gefa auglýsingahlé manni gott
tækifæri að hlaupa yfir rásirnar og athuga hvernig
staðan í körfuboltanum sé eða hvort
Bandaríkjaforseti sé kominn með snert af
miltisbrandi.
Það
er þó eitt sem truflar mig aðeins við auglýsingar
í miðjum myndum. Það eru engin takmörk á því
hvað sjónvarpsstöðvarnar geta gert við
sýningarréttinn og gætu því hæglega klippt heilu
myndirnar í tætlur til að koma auglýsingum að.
Ég er alls ekki fylgjandi því að setja sérstakar
reglur um hvenær auglýsingar megi koma inn. Mér
finnst þó óneitanlega mjög pirrandi þegar
flottasta atriðið í Untouchables er klippt í
sundur til að segja mér að Philip Morris sé á
móti því að börn reyki. Ef ég hefði ekki verið
að horfa á myndina í níunda sinn, þá hefði ég
ekki vitað betur en að Frank Nitti hefði sloppið
úr klóm Elliot Ness á þaki alríkisdómstólsins
í Chicago.
Ég
veit ekki hvort SkjárEinn sé byrjaður að klippa
kvikmyndir í sundur að bandarískri fyrirmynd. En ef
svo er eða til þess kemur, þá vil ég beina þeim
vinsamlegu tilmælum til klippimanna að þeir vandi
valið áður en þeir klippa myndina í sundur.
Heiðar
Ásberg Atlason pistlahöfundur
er lögfræðingur sem stundar
framhaldsnám við University of Miami.

|