|
4.
OKTÓBER 2001
DON'T
SAY A WORD
Trailerinn
lofaði frábærri spennu og myndin byrjaði vel. Sean
Bean leikur illmenni - leikur hann einhvern tímann
eitthvað annað en illmenni? - sem rænir ungri
dóttur frægs geðlæknis sem Michael Douglas leikur.
Bean krefst þess að Douglas beiti sinni
atvinnusnilld til að ná sex stafa númeri úr
höfði ungs kvenkyns geðsjúklings sem er nýkomin
í vörslur lögreglunnar vegna gruns um morð. Hún
er hins vegar virkilega skemmd í höfðinu af
ókunnum völdum og ekki alveg á þeirri skoðun að
segja neitt frá leyndarmáli sínu. Douglas verður
að beita öllum sínum brögðum á hana svo hann
nái að bjarga dóttur sinni í tíma. Sögusviðið
teygist aftur til þess tíma er faðir hennar var
drepinn af samkrimmum sínum eftir ágætlega heppnað
innbrot í banka.
Hugmyndin
að baki myndinni er góð. Hins vegar er ansi margt
sem hefði mátt laga í handritinu enda er margt sem
gengur hreinlega ekki upp. Ég ætla þó ekki að
þreyta neinn með þeirri upptalningu, heldur aðeins
að spyrja hvaða hlutverki Oliver Platt gegndi sem
geðlæknir lögreglunnar? Douglas stendur sig
ágætlega og Sean Bean er mjög góður í hlutverki
vonda kallsins og bjargar því sem hægt er. Fínir
sprettir á köflum en í heild nokkur vonbrigði.
Brött brekka niður á við í lok myndarinnar færir
henni heim tvær stjörnur.
Heiðar
Ásberg Atlason pistlahöfundur
er lögfræðingur sem stundar
framhaldsnám við University of Miami.

|