HEIÐAR ÁSBERG ATLASON
BÍÓPISTLAR
FRÁ MIAMI

 


25. SEPTEMBER 2001
AMERICA'S SWEETHEARTS
America's Sweethearts skartar góðu úrvali frægra leikara. Hægt er að greina myndina á marga vegu en fyrir mér var þetta rómantísk gamanmynd med fallegu fólki. Blanda sem hreinlega getur ekki klikkað.

Söguþráðurinn er sá að Billy Crystal leikur blaðafulltrúa fyrir kvikmyndaframleiðanda (Stanley Tucci). Crystal tekur að sér að promota nýja mynd sem skartar helsta stjörnupari Ameríku, Eddie (John Cusack) og Gwen (Catherinu Zetu-Jones). Eddie og Gwen eru þó ekki lengur par. Að auki er Eddie byrjaður i hugleiðslu til ad ná tökum á reiðinni yfir því ad Gwen hafi farið frá honum og tekið saman við málhaltan Spánverja. Crystal tekur að sér að ná þeim saman aftur til að kynna myndina og bjarga henni frá algjöru floppi. Eddie og Gwen ákveða þó að láta misklíðina ekki skemma fyrir framanum og samþykkja að mæta á frumsýningu myndarinnar. Það hefur þó enginn séð myndina þar sem leikstjórinn (Christopher Walken) er sérlundaður maður sem vill ekki leyfa neinum ad sjá meistaraverkið fyrr en frumsýningin fer fram fyrir framan fjölmiðla. Ekki má heldur gleyma sjálfri Juliu Roberts sem leikur Kiki, systur Gwen. Kiki vinnur sem eins konar einkaþjónn fyrir systur sína og er að auki ástfangin af Eddie, sem er aftur á móti ennþá ástfanginn af Gwen. Þegar að frumsýningu myndarinnar kemur fara einkennilegir hlutir í gang. Leikstjórinn ákvað ad breyta myndinni og búa til mynd sem sýnir raunveruleikann i kvikmyndabransanum. Úr þessu verður alveg hreint stórskemmtileg kómedía sem ég gef þrjár stjörnur.

Heiðar Ásberg Atlason pistlahöfundur
er lögfræðingur sem stundar
framhaldsnám við University of Miami.