Vanilla Sky  



Vanilla Sky er mynd sem tók mig dágóða stund að melta enda fer hún svo sannarlega yfir víðan völl. Raunar má segja að hún spanni flest kvikmyndaform að einhverju leyti allt frá hrollvekju til rómantískra mynda. Nafn myndarinnar er vísun í málverk eftir Monet en myndin sjálf er endurgerð spænsku myndarinnar "Abre Los Ojos" sem leikstýrð var af Alejandro Amenábar. Nú er hins vegar Cameron Crowe (Jerry Maguire. Almost Famous) við stjórnvölinn og hefur hann fengið ekki ómerkari leikara en Tom Cruise til að fara með aðalrulluna.

Þema myndar Amenábars voru hugtökinn "raunveruleiki" og "draumar", tengslin þar á milli og þýðing þeirra í nokkuð víðu samhengi. Hér er það sama upp á teningnum. Tom Cruise leikur ríkan glaumgosa í New York sem lifir nokkurs konar draumalífi. Cameron Diaz leikur vinkonu hans en vinátta þeirra nær einnig til svefnherbergisins. Straumhvörf verða svo í lífi glaumgosans þegar eitt kvöld hann kynnist í fyrsta skipti sannri ást í formi spænsku þokkagyðjunnar, Penelópu Cruz. Þessi nýja ást vekur upp öfund í brjósti fyrrum vinkonu hans, Diaz, og gengur hún svo langt að aka bíl sem þau eru bæði í fram af brú. Cruise lifir af en andlit hans afskræmist afar illa. Í kjölfarið hefst svo nýtt líf þar sem draumar og raunveruleiki taka að skarast.

Öll framleiðsla myndarinnar er pottþétt enda er Crowe mikill fagmaður á sínu sviði. Sérstaklega er mögnuð senan í upphafi myndarinnar þar sem Tom Cruise hleypur einn um galtómt Time Square í New York og var hún ekki tölvugerð. Leikurinn er líka fínn en sérstaklega er Cameron Diaz í góðu formi í erfiðu hlutverki. Það sem hins vegar fór ekki vel í maga hjá mér var handritið sjálft. Sem karakterstúdía finnst mér það reglulega athyglisvert enda hafa mannleg samskipti ávallt verið sterkasta hlið Crowe. Þar eru á ferðinni greinilegar vísanir í sögur eins og t.d. "Beauty and the Beast", "Dr. Jekyll and Mr. Hyde" og "Hunchback of Notre Dame". Það sem virkaði hins vegar ekki fyrir mig var sú hlið handritsins sem sneri að draumum og raunveruleika. Raunar mætti frekar segja að endirinn hafi ekki virkað. Mörgum athyglisverðum spurningum um efnið er varpað fram og er þeim flestum svarað í lokasenu myndarinnar. Þau svör voru hins vegar að mér fannst frekar ódýr, óraunsæ og ófullnægjandi. Þó er ég viss um að skiptar skoðanir muni vera um þetta. Allt í allt er þó "Vanilla Sky" metnaðarfull og áhugaverð mynd sem er vel þess virði að sjá. - Hallur Örn Jónsson

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com