Training Day  



"Inngöngupróf frá helvíti" væri góð fyrirsögn yfir umfjöllun um "Training Day". Sá sem í því lendir er nýliði í eiturlyfjadeild lögreglu Los Angeles borgar. Fyrsta daginn er hann settur í umsjón reynds kappa sem á svo að meta hvort hann sé hæfur til starfans. Í starfinu felst að keyra um götur borgarinnar, óeinkennisklæddir, og berjast við eiturlyfjavandann þar sem hann verður á vegi þeirra. Gamla kempan, leikin af Denzel Washington, lýsir því yfir að þeir verði að vera úlfar því annars lifi þeir ekki af í þessu harða starfsumhverfi. Vandmálið er bara það að í öllu spangólinu virðist jálkurinn hafa gleymt því hvorum megin við strikið hann virkilega á að vera.

"Training Day" er reglulega kraftmikil mynd og vel gerð í flesta staði. Fléttan er tiltölulega vel útpæld þó einstaka atvik komi upp sem verða að teljast afar heppileg sérstaklega í seinni hluta myndarinnar. Þó heldur hún spennunni nokkuð vel út í gegn. Leikstjórinn Antoine Fuqua (The Replacement Killers) heldur vel utan um myndina, sérstaklega fyrri hlutann, sem gefur skemmtilega innsýn í þennan ákveðna heim, enda myndin tekin í mörgum af verstu hverfum L.A. Ekki sakar heldur góður leikur Ethan Hawke í hlutverki nýliðans en hann passar vel í hlutverkið. Þó hverfur hann í skuggann af Denzel Washington sem er frábær og virðist skemmta sér konunglega. Fyndið er líka að sjá rapparana Dr. Dre og Snoop Dogg í litlum hlutverkum. Hér er því fyrsta klassa afþreying sem þó skilur ekkert eftir sig. - Hallur Örn Jónsson

 
     



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com