Traffic  



Traffic er nýjasta afsprengi heitasta leikstjóra Draumaverksmiðjunnar í dag, Steven Soderbergh, sem er tilnefndur til óskarsverðlauna í ár bæði fyrir þessa mynd og Erin Brockovich. Meginþema myndarinnar er baráttan gegn eiturlyfjum sem er skoðuð á mjög gagnrýninn og jafnframt athyglisverðan hátt. Hér eru í raun fjórar mismunandi sögur fléttaðar saman og sýnir hver þeirra um sig mismunandi hlið á vandamálinu. Myndin hefur marga kosti. Myndatakan er mjög vönduð, leikstjórnin góð og leikararnir standa sig allir með prýði. Hlaut Benicio del Toro m.a. verðskuldað Golden Globe verðlaun fyrir leik sinn. Handrit myndarinnar er afskaplega metnaðarfullt og þótt það hljómi kannski undarlega þá er það einmitt helsti galli myndarinnar. Það er svo margslungið og á köflum þungt í vöfum að spenna og neisti ná aldrei fullkomlega að myndast. Fyrir vikið verður myndin yfirborðskennd og aldrei eins grípandi og efni stóðu til. Það mætti því líkja Traffic við Ferrari sportbifreið sem kemst því miður aldrei upp úr fjórða gír. - HÖJ

SKOÐA SÝNISHORN ÚR MYNDINNI Á KVIKMYND.IS