|

Þegar á fletti
upp þýðingu orðsins Tomcat á vefsíðunni
Dictionary.com þá var mér skilað tveimur
niðurstöðum. Orðið getur bæði þýtt
karlkyns köttur og karlmaður sem á fleiri en
einn bólfélaga. Þrátt fyrir að myndin sé
dýrsleg á köflum og húmorinn fremur
ógeðfelldur þá hallast ég þó frekar að
því að seinni þýðingin sé hin rétta.
Myndin hefst í brúðkaupi þar sem vinahópur
sem samanstendur af nokkrum karlkyns aulum
ákveður að sá sem giftist síðastur skuli
hljóta stóran peningapott. Nokkrum árum
síðar þegar einungis tveir vitleysingar eru
enn ógiftir lendir annar þeirra (Jerry
O'Connell) í því að þurfa að greiða
stóra skuld. Til að bjarga málunum þá fær
hann eiturharða löggu (Shannon Elizabeth) til
að draga hinn ógifta hálfvitann (Jake Busey)
á tálar og giftast honum. Að sjálfsögðu
verður svo fyrrnefndi asninn ástfanginn af
löggunni. Hér er um að ræða mynd í stíl
við "American Pie" og "Road
Trip". Tomcats gengur hins vegar jafnvel
lengra en þær tvær í ódýrum húmor og þá
sérstaklega hvað varðar kynlífsbrandara.
Þó er hún mun verri en "American
Pie". En þrátt fyrir að myndin sé öll
bölvuð vitleysa og heimskulegur hamagangur
frá upphafi til enda þá leiðist manni ekki
og einstöku sinnum getur maður jafnvel hlegið
að öllu ruglinu. Leikur og leikstjórn eru
viðunandi. Engu að síður er hér um
svokallaða "spólumynd" að ræða. - Hallur
Örn Jónsson
|