The Mexican  



Mynd með Brad Pitt og óskarsverðlaunahafanum Juliu Roberts hlýtur að vekja athygli og laða að sér áhorfendur. Myndin er augljóslega hugsuð sem stjörnufarartæki (e. star vehicle) og virkar ágætlega sem slíkt. Stjörnufarartæki er mynd sem er hönnuð utan um ákveðna fræga leikara og hugsuð til að sýna hvað þeir séu nú æðislegir. Myndin fjallar um mann sem leiðst hefur fyrir tilviljun út í smákrimmavinnu og er fengið það hlutverk að ná í byssu í Mexíkó. Þetta er hans síðasta verk en kærasta hans, Júlía, er ekki sérlega sátt við þessi áform og fer frá honum. Vandamálin hrannast upp í framhaldinu og Júlía og Brad lenda í ýmsum vandræðum á leiðinni. Einn helsti galli myndarinnar, sem e.t.v. væri hægt að telja kost, er að leikstjórinn Gore Verbinski (Mouse Hunt) virðist hafa átt í erfiðleikum með að átta sig á því hvort um væri að ræða spennumynd, dramatíska mynd eða gamanmynd þó gamnið sé nú sjaldan langt undan. Brad og Júlíu tekst nokkuð vel upp í sínum hlutverkum en það er þó hinn frábæri James Gandolfini (Tony í The Sopranos) sem stelur senunni sem viðkunnanlegur fantur. Fólk á væntanlega eftir að fara á myndina vegna Brads og Júlíu og það verður svo sem ekki fyrir vonbrigðum. - Guðjón Helgason