|

Ed Crane (Billy Bob Thornton) er rakari.
Eiginkona hans Doris (Frances McDormand) sér um
bókhaldið í smásölu í hverfinu. Hún
heldur framhjá eiginmanni sínum með
verslunareigandanum (James Gandolfini). Ed sem
veit af þessu er eðlilega ekki ánægður með
þessa tilhögun. Svona hefst hrakafallasaga
manns sem Coen bræður eru ábyrgir fyrir.
Myndin,
eins og allar myndir þeirra bræðra, er
næstum óaðfinnanleg í útliti og
framleiðslu. Leikurinn er góður, myndatakan
fín en myndin er höfð svarthvít til að
skapa Film-Noir stemmningu og tekst það bara
ágætlega. Vandamálið er hins vegar stórt og
eitthvað sem við eigum ekki að venjast frá
þeim bræðrum: Myndin er einfaldlega ekki
nógu skemmtileg. Þó að hún sé reglulega hnyttin
á köflum þá er hún fremur langdregin. Ekki
hjálpar heldur að persónurnar eru svo
fjarlægar að erftitt er að finna nokkuð til
með þeim. Umbúðirnar hérna eru því
virkilega glæsilegar en innihaldið fremur kalt
og innantómt.
-
Hallur
Örn Jónsson
|