The Emperor´s New Groove  



Disney teiknimyndir geta oft verið mjög skemmtilegar. The Lion King hlýjaði mörgum um hjartaræturnar fyrir nokkrum árum og maður hló hressilega að Alladin á sínum tíma. Minna hefur farið fyrir myndinni Nýi stílinn keisarans. Myndin fjallar um keisarann Kuzco sem er mjög eigingjarn. Helsti ráðgjafi hans, hún Yzma, ásamt heimska aðstoðarmanni sínum Kronk, vill ná völdum í ríkinu og gefur honum eitur sem breytir honum í lamadýr. Mikil ævintýri fylgja í kjölfarið. Myndin er nokkuð fyndin og óhætt að fullyrða að bæði ungir sem aldnir muni hafa gaman af. Það sem mér þótti einna best við þessa mynd var fjöldi söngatriða. Það var nákvæmlega eitt slíkt í myndinni, ólíkt öðrum Disney teiknimyndum, og það atriði var í upphafi myndarinnar. Ekki finnst mér slík atriði leiðinleg en þau eru oft of mörg í Disney myndunum. Þessi mynd hlýjaði mér ekki eins og Konungur ljónanna og ég hló ekki eins mikið og af Alladin en þar höfðum við Robin Williams. Nýi stílinn keisarans er samt sem áður fín skemmtun fyrir alla aldurshópa.
- GH