|


|

Hágæða frönsk
spennumynd eins og þær gerast bestar. Tekur
við Seven kyndlinum og fer aðeins lengra með
hann, a.m.k. hvað varðar ógeðfelld atriði.
Jean Reno fer á kostum svo og Vincent Cassel.
Sérlega ógeðfellt morð er framið í
hljóðlætum bæ í ölpunum og kallaður er
til Pierre Niémans (Jean Reno) til að
rannsaka. Fljótlega berast böndin að
háskólanum hjá bænum. Á meðan líkin
hrannast upp reynir Pierre að komast að því
hver morðinginn er. Með hjálp
lögreglumannsins Max Kerkérian (Vincent
Cassel) þrengir Pierre hringinn. Morðflettan
er flókin, og ekki á færi allra að fylgjast
með, en það eyðileggur samt ekkert fyrir
áhorfendum þótt þeir missi eitthvað úr.
Einstaklega vel leikin mynd og leikstjórnin er
góð. Hörð keyrsla á köflum. Ein besta
franska mynd sem ég hef séð. Alls ekki mynd
fyrir börn eða viðkvæma, en fyrir alla sem
hyggja á frama í réttarlækningum. -
Eggert
Páll Ólason
|
|