State and Main  



David Mamet (The Spanish Prisoner, Ronin, Hannibal) er einn af betri handritshöfundum í Hollywood og sýnir gamla og góða takta í myndinni State and Main. Mamet leikstýrir einnig myndinni og kemst vel frá því verki. Myndin fjallar um hóp kvikmyndagerðarmanna sem koma til smábæjar í Bandaríkjunum til þess að taka upp mynd. Það er ekki létt verk að koma öllu heim og saman og áhorfandinn fylgist með spaugilegum samskiptum íbúanna og fólksins frá Hollywood. Vandamál kvikmyndagerðarmannanna eru mörg hver óborganleg og allar líkur á því að Mamet sé að lýsa eigin reynslu úr Hollywood. Framleiðendurnir þurfa að breyta staðarháttum í bænum, passa upp á hegðun stórstjarnanna og gæta þess að þær séu ánægðar og jafnframt hafa íbúa smábæjarins góða. Ýmsir góðir leikarar fara á kostum í þessari léttu og ljúfu mynd. Philip Seymour Hoffman (Almost Famous, Happiness), William H. Macy (Fargo, Boogie Nights), Sarah Jessica Parker (Sex and the City) og Alec Baldwin (The Edge, Mercury Rising), svo einhverjir séu nefndir, standa fyllilega fyrir sínu í þessum breiða og skemmtilega leikarahóp. Mamet tekst oft mjög vel upp í verkum sínum og þessi mynd er mjög góð skemmtun en það vantar ákveðinn neista. Ég lofa hlátri og það er alveg nóg. - GH