|

Rosalega eru hundar
alltaf sniðugir í bíómyndum. Hundar eru
líka svo sætir. Þeir lifa flestar
náttúruhamfarir af í kvikmyndum frá
Hollywood á meðan mannfólkið fellur frá í
umvörpum. Hundar eru oftar en ekki hetjurnar í
myndum á borð við Spot. Mannfólkið er
treggáfað eða brjóstumkennanlegt ef það er
komið yfir 12 ára aldurinn og krakkarnir og
hundarnir klárastir allra. Auðvitað er Spot
miðuð að yngri áhorfendum líkt og myndir um
hundana Lassie og Benji þegar ég var yngri.
Þær myndir voru nokkuð skemmtilegar og
hundarnir alltaf svo sniðugir og miklar hetjur.
Krakkarnir í salnum skemmtu sér mjög vel á
þessari mynd og höfðu mjög gaman af prump og
detta bröndurunum og fullorðna fólkið í
salnum hló af nokkrum tvíræðu bröndurunum
sem virtust eðlilega fara fyrir ofan garð og
neðan hjá börnunum. Sagan er afar einföld.
Depill er hetja hjá FBI sem vinnur það sér
til frægðar að gæða sér á öðru eista
valdamikils mafíuforingja (Paul Sorvino sem
upplifir hér án efa einn af lágpunktum ferils
síns) og verður því að skotmarki
leigumorðingja og þarf að fara í felur.
Ungur auli (David Arquette öðru nafni herra
Courteney Cox) lendir í því fyrir misskilning
að passa son sætu gellunar í næstu íbúð
(Leslie Bibb) ögn lengur en til var ætlast og
þeir taka Depil að sér án þess að gera
sér grein fyrir því hvar hann vinnur fyrir
hundamatnum sínum. Myndin virðist hafa náð
til markhóps síns þar sem unga fólkið
virtist hafa mjög gaman af myndinni og án efa
hefði ég hlegið meira ef ég væri 11 ára
eða yngri. - Guðjón
Helgason
|