|


|

Söguþráðurinn
í mörgum myndum sem hægt væri að kalla
konumyndir snýst um spurninguna: “Eru menn
svín?” Í þessari mynd er bætt við
svarinu: “Já, eða hvað?” Sagan segir frá
Jane (Ashley Judd) sem vinnur sem framleiðandi
sjónvarpsþáttar og fellur fyrir nýja
starfsmanninum, Ray (Greg Kinnear), sem er þó
í sambandi við aðra konu. Þau fella hugi
saman en ekki er allt sem sýnist og málin
stefna í óefni. Ennfremur er ýmsum kenningum
um hæfni karlmanna til að standa í
langtímasamböndum velt fram í myndinni. Inn
í söguna fléttast kvennabósinn í vinnunni,
Eddie (Hugh Jackman sem lék Wolverine í
X-Men), sem hoppar rúm úr rúmi og vinkona
Jane, Liz (óskarsverðlaunahafinn Marisa
Tomei), sem Jane leitar til þegar á bjátar í
ástamálunum. Sagan er ekki sérlega flókin og
e.t.v. ögn fyrirsjáanleg en sett fram á mjög
skemmtilegan hátt og leikararnir standa allir
vel fyrir sínu en þó sérstaklega Judd og
Jackman (sem mun væntanlega fara á kostum í
hasarmyndinni Swordfish nú í sumar). Ég var
einn fárra karlmanna í salnum þegar ég sá
þessa mynd og það var ekki annað að heyra
en að kvenkyns áhorfendum félli myndin vel í
geð. Ég hef það eftir áreiðanlegum
heimildum að þetta sé mjög góð stelpumynd
og ég verð að vera sammála því, myndin er
gamansöm og langt frá því að vera
óþarflega væmin. - Guðjón
Helgason
|
|