|


|

Einu sinni í fjarlægu landi bjó afskaplega lágvaxinn lávarður sem átti þann
draum heitastan að verða kóngur. Til þess að uppfylla þá ósk þurfti hann
einungis að finna réttu brúðina og kvænast henni. Auðvitað bregður hann á
það ráð að tala við töfraspegilinn sinn sem gefur honum þrjá kosti. Fyrri
tveir kostirnir eru þær Öskubuska og Þyrnirós en þriðji möguleikinn er
Fiona sem er fangi dreka í kastala. Eftir strembna umhugsun verður Fiona
fyrir valinu. Nú vantar Farquad lávarð bara hetju til að bjarga henni úr
kastalanum þar sem hann er auðvitað engin slík hetja. Fyrir valinu verður
stórt grænt, fremur ófrítt, en tilfinningnæmt tröll að nafni Skrekkur sem
vill aftur móti ekkert frekar en að losna við allar þær goðsagnaverur sem
hafa tekið sér bólstað í mýrinni hans. Málið er það að Farquad vill ekki
slíkar verur í fyrirmyndarríkinu sínu og því hafa birnirnir þrír og fleiri
kunnar verur tekið sér bólstað hjá Skrekki. Fær Skrekkur því samþykkt að
hann fái löggilt afsal að mýrinni ef hann bjargar tilvonandi
drottningu Farquads. Á leiðinni fylgir honum svo uppáþrengjandi og
síkjaftandi asni, já asni, sem vill þó öllum vel.
Þetta er í stuttu máli grunnurinn að söguþræði tölvugerðu teiknimyndarinnar
"Shrek". Eins og glögglega sést þá er hér ekki um neina venjulega
ævintýramynd að ræða. Hér hefur mörgum þekktum ævintýrum og ævintýraminnum
verið snúið á haus og útkoman er hreint alveg frábær og á sinn hátt frumleg
skemmtun fyrir alla aldurshópa. Með þessari mynd hefur Dreamworks endanlega
tekist að skáka því tangarhaldi sem Disney hafði á þessari tegund mynda og
er hún að því leyti tímamótamynd. En það sem gerir hana ekki síður að
slíkri mynd er sjálft útlitið. Yfir 250 manns hafa unnið að gerð
myndarinnar í hátt í tvö ár og útkoman er einfaldlega sjónræn veisla. Allt
niður í minnstu smáatriði er alveg ótrúlega vel gert, svo vel að
fyrirrennarar eins og t.d. Toy Story myndirnar líta út sem áhugamannaverk.
Aftur á móti eru brellurnar aldrei í aðalatriði hér eins og í svo mörgum
öðrum sumarmyndum. Þær virka einungis sem stoð í kringum skemmtilegan og
jafnframt óvæntan söguþráð fullan af bæði frábærum húmor og boðskap sem þó
verður aldrei nokkurn tímann þrúgandi. Talsetningin er ekki síður mögnuð en
þar fara Mike Myers, sem hinn augljóslega hálfskoski Skrekkur, John Lithgow
sem Farquad lávarður og Cameron Diaz sem Fiona prinsessa á kostum. Senunni
stelur þó Eddie Murphy sem asninn, sem sannar enn og einu sinni hversu
ótrúlega góður gamanleikari hann er. Í stuttu máli er "Shrek" skapstór
nútíma ævintýramynd sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
- Hallur
Örn Jónsson
|
|