|
|

Frumraun
leikstjórans Jonathan Glazer, Sexy Beast, er áhugaverð
glæpa-, grín- og dramamynd sem er um leið mjög
áhugaverð karakterstúdía og sálfræðispennumynd.
Hinn frábæri Ray Winstone (Nil by Mouth, Love,
Honour and Obey, The War Zone) leikur glæpamanninn
Gal Dove sem er sestur í helgan stein á Spáni
ásamt eiginkonu sinni og lifir þar ljúfu lífi
og sólar sig milli þess sem hann snæðir góðan
mat með vinum sínum. Þetta ljúfa líf hans
er hins vegar truflað þegar geðsjúklingurinn
Don Logan (Ben Kingsley) sækir hann heim og
vill fá hann til að taka að sér verkefni í
London. Gal vill ekki fara aftur út á glæpabrautina
en hann veit að það er erfitt að segja nei
við Don Logan. Sagan er mjög einföld en
samskipti persónanna eru mjög skemmtileg og
nettur dökkur húmor er alltaf undirliggjandi
í frásögninni. Myndin er stílhrein og tekst
leikstjóranum Glazer að krydda frásögnina með
sniðugum sjónarhornum og áhugaverðum stíl sínum
og er óhætt að segja að ég mun bíða
spenntur eftir næstu mynd hans. Leikurinn er
fyrsta flokks í þessari mynd og fyrir utan
Winstone er gaman að sjá Ian McShane (Lovejoy)
koma fram á sjónarsviðið á ný eftir
nokkurt hlé. Það er þó að öðrum ólöstuðum
sjálfur Ben Kingsley sem stelur senunni sem hin
uppstökki og geðbilaði Don Logan. Það er
einfaldlega unun að horfa á hann njóta sín
í þessu hlutverki og það er nokkuð ljóst að
hann er einn af betri leikurum í bransanum í
dag og hefur það merka hæfileika að geta
leikið á fullkomlega trúverðugan hátt allt
frá Ghandi til geðsjúks glæpamanns og allt
þar á milli. Þetta er því miður sjaldgæfur
hæfileiki í kvikmyndabransa dagsins í dag sem
byggir á sætabrauðsdrengjum sem gætu ekki
leikið sig lausan úr blautum pappapoka. Það
er vel þess virði að sjá þessa mynd þó
ekki væri nema bara til að sjá hvernig
leikarar ættu að bera sig að.
- Guðjón Helgason
|
|