Say It Isn't So  



Farrelly bræðurnir Bobby og Peter (Dumb and Dumber, There´s Something About Mary, Me, Myself and Irene) hafa nú á síðustu árum fest sig í sessi sem meistarar groddalegs húmors sem er ætlað að ganga fram af áhorfendum um leið og þeir hlæja. Þeir leikstýra þó ekki í þetta sinn heldur framleiða en handbragð þeirra er augljóslega á þessari litlu gamanmynd. Myndin fjallar um ungan mann leikinn af Chris Klein (Election, American Pie) sem býr í smábæ í Bandaríkjunum og fellur fyrir ungri hárgreiðslukonu sem varla er starfi sínu vaxin og leikin er af Heather Graham (Austin Powers: The Spy Who Shagged Me, Boogie Nights). Þau fella hugi saman en þegar upp kemst um skyldleika þeirra er ljóst að samband þeirra er forboðið. Myndin er nokkuð fyndin á köflum og gefur Mary og Irene ekkert eftir í groddahúmor. Leikstjóra og handritshöfundum hefur tekist ætlunarverk sitt ágætlega og óhætt að mæla með þessari mynd fyrir aðdáendur Farrelly bræðra þó ef til vill megi færa rök fyrir því að það sé verið að rembast ögn við að ganga fram af áhorfendum og handritshöfundarnir hafi þurft að reyna meira á sig en Farrelly bræðurnir við að skrifa fyndnar og ógeðfeldar senur. Leikararnir standa fyllilega fyrir sínu og kemur Sally Field skemmtilega á óvart sem mamma Heather Graham og fer hún á kostum í því hlutverki. - Guðjón Helgason