Pokémon 3  



Áhugi minn á öllu sem tengist Pokémon var afskaplega lítill áður en ég sá þessa mynd og ég get ekki sagt að hann hafi nú aukist. Ég hef ekki séð fyrri tvær myndirnar þannig að ég hef engan samanburð en þó fannst mér hér einungis um ósköp venjulega teiknimynd að ræða sem hefði alveg eins getað verið sýnd í sjónvarpi. Þar að auki var þetta afskaplega flókið allt saman fyrir mig, leikmanninn í fræðunum, þó yngri krakkarnir virtust betur með á nótunum. Níu ára frændi minn sem ég tók með mér var hins vegar mjög ánægður með þetta allt saman og þá hlýtur markmiði myndarinnar að vera náð. - Hallur Örn Jónsson