|
|
National Treasure: Book of Secrets | |
![]()
|
Nicolas Cage er snúinn aftur sem Ben Gates, fjársjóðsleitarmaður með meiru. Að þessu sinni reynir hann að hreinsa nafn forföður síns, en besta leiðin til þess er einmitt að finna falinn fjársjóð sem rennur stoðum undir það sem Ben telur sannleikann í málinu. Þetta er hreinræktuð ævintýramynd, hröð og spennandi en handritið er ekki upp á marga fiska. Hver tilviljunin rekur aðra og sagan afar ótrúverðug. Á hinn bóginn búast sennilega fæstir áhorfendur við mjög trúverðugu handriti í mynd sem þessari. Myndinni svipar mjög til fyrri myndarinnar, Cage stendur sig ágætlega, þó hann mætti kannski fara að takast á við bitastæðari hlutverk. Þetta er þó hreint ágæt leið til að gleyma skammdeginu og hverfa á vit fjársjóðsleitar og ævintýra um stund.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com