|

Nýjasta teiknimynd
Disney og teiknimyndafyrirtækisins Pixar (Toy
Story 1 og 2) fjallar um skrímslin sem koma út
úr fataskápum barna á næturnar og hræða
þau. Skrímslin búa í Monstropolis borg og
þurfa á öskrum barna að halda til að nýta
þau sem eldsneyti. Sulley (John Goodman) og
Mike (Billy Crystal) vinna fyrir Skrímsli hf.
sem gera sína menn út af örkinni til að
hræða börn og sækja orku. Það sem börnin
vita hins vegar ekki er að skrímsli telja
börn banvæn og ein snerting gæti hæglega
drepið hvaða skrímsli sem er. Síðan nær
eitt barn í gegnum skápinn og þá er voðinn
vís.
Hér
er um að ræða stórskemmtilega teiknimynd
fyrir unga sem aldna. Hér er eitthvað fyrir
alla aldurshópa. Líkt og í Toy Story myndunum
er hér um að ræða listilega teiknaða mynd
og hrein unun að sjá hvað er hægt að gera
með teiknimyndir. Framtíðin er björt fyrir
þessa kvikmyndagrein og verður gaman að sjá
hvað þeir hjá Pixar og fleiri slíkum
fyrirtækjum láta frá sér í framtíðinni.
Monsters
Inc. er í senn hugljúf, án þess að vera
væmin, og fyndin, án þess að fara út í
fullkominn delluhúmor. Frábærir leikarar ljá
persónum myndarinnar raddir sínar. Auk Crystal
og Goodman má heyra í þeim James Coburn,
Steve Buscemi, Jennifer Tilly og leikstjóranum
Frank Oz (sem hefur leikstýrt myndum á borð
við The Score og Bowfinger auk þess að hafa
ljáð Yoda í Star Wars og Prúðuleikurum á
borð við Svínku og Fossa birni rödd sína).
Framleiðendum
og leikstjórum hefur því tekist fullkomlega
ætlunarverk sitt sem hefur verið að búa til
heillandi og skemmtilega teiknimynd fyrir alla
aldurshópa.
Ég vil að lokum sérstaklega mæla með
stuttmyndinni sem sýnd var á undan myndinni.
Er þar um að ræða fuglamynd frá Pixar.
Einföld er frábærlega fyndin mynd.
-
Guðjón
Helgason
|