|


|

Exit Wounds markar endurkomu Stevens Seagals á
hvíta tjaldið. Myndin er skrambi góð hasarmynd.
Steven leikur Orin Boyd, dæmigerða hasarhetju,
sem byrjar á því að bjarga varaforsetanum
frá hryðjuverkamönnum. Fyrir vikið er hann
lækkaður í tign og sendur í versta
lögregluumdæmi borgarinnar. Að sjálfsögðu
fylgja ævintýri honum og Boyd kemst fljótlega
að því að maðkur er í mysu lögreglunnar.
Hinn góðkunni rappari níunda áratugsins,
DMX, leikur hitt aðalhlutverkið á móti
Seagal, og Tom Arnold sér um léttu tónana.
Þetta er ómissandi mynd fyrir Seagal
aðdáendur, en aðrir þurfa ekki að láta
sér leiðast. Seagal er án
taglsins, en stendur fyrir sínu.
-
EPÓ
|
|