|

Joel (Jim Carrey)
og Clementine (Kate Winslet) hafa átt í
stormasömu sambandi sem endar með því að þau
fara sitt í hvoru lagi til Dr. Howard Mierzwaik
(Tom Wilkinson) og láta þurrka hvort annað út úr
minni sínu. Sú spurning vaknar þó hvort þetta
hafi verið rétt ákvörðun og ekki er víst að þau
geti alveg sloppið út úr lífi hvors annars þrátt
fyrir þessa aðgerð. Inn í sögu þeirra Joel og
Clementine blandast svo saga af Mierzwaik
sjálfum og starfsfólki hans, en þau eru kannski
ekki með hlutina alveg jafn mikið á hreinu og
virðist í fyrstu.
Það er best að segja sem minnst frá söguþræði
myndarinnar, og leyfa áhorfendum að upplifa
söguna með eigin augum. Aðalhandritshöfundurinn
er Charlie Kaufmann, sem hefur getið sér gott
orð sem einn af þeim frumlegri í Hollywood. Hann
á meðal annars heiðurinn af handritum myndanna
Being John Malkovich og Adaptation. Aftur tekst
honum að koma með sögu sem er byggð á mjög
skemmtilegri og frumlegri hugmynd.
Handritið er virkilega vel skrifað, en til að
fullkomna verkið eru svo úrvalsleikarar í öllum
hlutverkum. Carrey hefur auðvitað hingað til
verið þekktastur fyrir villtan gamaleik, en
hefur verið að færa sig sífellt nær alvarlegri
hlutverkum. Að þessu sinni sannar hann svo um
munar hversu fjölhæfur og öflugur leikari hann
er. Myndin byggist að miklu leyti upp á frábærum
samleik hans og Winslet, sem einnig stendur sig
gríðarvel. Þau Elijah Wood, Mark Ruffalo,
Kirsten Dunst og Wilkinson eru einnig mjög góð í
hlutverkum starfsmanna læknastofunnar sem
framkvæmir aðgerðirnar.
Það er auðvitað ekki hægt sleppa því að minnast
á þátt Valdísar Óskarsdóttur, en hún sá um
klippingu myndarinnar. Valdís hafði áður unnið
sér það helst til frægðar að klippa hina
stórgóðu mynd Festen, og ekki er það verra að
bæta þessari mynd á afrekaskrána. Leikstjóri
myndarinnar er hinn franski Michel Gondry. Það
er gaman að geta þess að Gondry þessi hefur
leikstýrt nokkrum góðum myndböndum fyrir Björk í
gegnum tíðina, en hann er nýbyrjaður að prófa
sig áfram í leikstjórn kvikmynda. Ekki er hægt
að kvarta yfir árangrinum þar, og hann stendur
sig hér feikivel, og varla hægt að finna snöggan
blett á myndinni. Handrit, leikur, tónlist og
úrvinnsla öll er til fyrirmyndar. Í einu orði
sagt er þetta stílhreint snilldarverk.
-
Hjörleifur Pálsson
|