|


|

Góða
nótt Meg Ryan, og sofðu rótt. Takið allar
rómantísku gamanmyndirnar sem þið eigið
með Meg Ryan og hendið þeim í ruslið. Renée
Zellweger gerir þetta miklu betur. Auðvitað
er hún svolítið pírð og skrýtin til
augnanna, og einhverjir láta það fara í
taugarnar á sér. En hún leikur hana Birgittu
alveg glimrandi vel. Og myndin er einhvern
veginn svo miklu eðlilegri heldur en flestar
aðrar rómantískar myndir. Ein vinsælasta
myndin af þeirri gerðinni er auðvitað Pretty
Woman. Og hana hef ég horft á þúsund sinnum.
En lets face it, Júlía Roberts var nú ekkert
sérstaklega sannfærandi mella! Hún var allt
of skynsöm, klók og hæfileikarík til þess
að þurfa að vinna fyrir sér með þeim
hætti. Og þetta á við um svo margar
rómantískar gamanmyndir, þær ganga einhvern
veginn ekki alveg upp, þær lýsa atburðarás
sem myndi aldrei eiga sér stað í
hversdagslegum raunveruleikanum. Þessu er
öfugt farið í myndinni um dagbókina. Þar er
allt svo eðlilegt og trúverðugt. Ég held að
ansi margar konur geti séð sig í henni
Birgittu. Myndin er svo fyndin, eðlileg og sæt
að þið verðið bara að sjá hana. Og svo er
hann Hugh Grant meira að segja bara helvíti
góður í hlutverki sínu. Síðast en ekki
síst þá hafa strákar líka gaman af þessari
mynd… alveg satt. Ég sat í troðfullum sal
eitt í Háskólabíói og strákarnir tuttugu
sem voru á myndinni hlóu og grétu til
skiptis.
- Sigþrúður
Ármann
|
|