|


|

Að horfa á Blow
er eins og að klífa fjall. Myndin toppar í
hléi en eftir það er hún á stöðugri
niðurleið. Sagan er víst sönn og fjallar um
ris og fall eins umsvifamesta eiturlyfjasmyglara
í sögu Bandaríkjanna, George Jung, sem
leikinn er af Johnny Depp. Hann á að hafa
unnið það heldur vafasama afrek að hafa
innleitt kókaínið, eiturlyf ríka og fræga
fólksins, til Bandaríkjanna. Sagan fylgir
honum alveg frá grasrótunum á strönd í
Kaliforníu á sjöunda áratugnum til dagsins í dag. Heimur eiturlyfjanna er víst
harður og stutt er á milli þessa að svíkja
og vera svikinn. Kemur þetta sérstaklega
niður á sambandi hans við dóttur sína,
eiginkonu (Penélope Cruz) og foreldra sem er
meginþemað eftir hlé. Gallinn er bara sá að
sú saga er ekki nærri því eins grípandi
og skemmtileg og sagan um ris hans til "frama"
sem lýst er í fyrri hlutanum. Þetta er ekki
heimildamynd um eiturlyfjabransann þó að hún
veiti okkur við og við innsýn inn í hann.
Hún sýnir ekki áhrifin sem kókaínið sem
George Jung seldi hafði á milljónir
Bandaríkjamanna. Myndin er um George sjálfan
og hún stendur og fellur með því hvort
áhorfandinn getur fundið til samúðar með
slíkum manni. Undir þessum kringumstæðum er
gríðarlega mikilvægt að aðalleikarinn skili góðu verki og eins og ávallt þá
stendur Johnny Depp undir væntingum. Ég er
mikill aðdáandi hans og hann á allan
heiðurinn af seinustu hálfu stjörnunni sem
myndin fær. -
Hallur
Örn Jónsson
|
|