|


|

Bókasería
rithöfundarins James Patterson um
lögreglumanninn Alex Cross hefur náđ nokkrum
vinsćldum í Bandaríkjunum og hafa bćkur um
hann nú komiđ út um nokkurra ára skeiđ.
Fyrsta bókin um Alex Cross hét Along Came a
Spider og byggir ţessi mynd á ţeirri bók.
Hér er um ađ rćđa sjálfstćtt framhald
myndarinnar Kiss the Girls frá árinu
1997 sem byggđi einnig á bók eftir Patterson
en ţar fór Morgan Freeman einnig međ hlutverk
Alex Cross. Í ţessari mynd á Cross í höggi
viđ hćttulegan glćpamann sem rćnir dóttur
ţingmanns og virđist hafa ýmislegt skuggalegt
á prjónunum í framhaldi af ţví. Ég vil
ekki láta meira uppi um söguţráđ
myndarinnar og lofa ađeins ágćtri spennumynd.
Myndin nćr í raun takmarki sínu, ađ skemmta
áhorfandanum og byggja upp spennu.
Leikstjóranum Lee Tamahori (Once Were Warriors,
Mullholland Falls, The Edge) tekst ágćtlega
upp í ţessari mynd og leikararnir standa sig
allir međ ágćtum. Ţetta er ef til vill ekki
sérlega eftirminnileg mynd og keimlík mörgum
spennumyndum sem komiđ hafa fram á síđustu
árum. Ţetta er ţó hin ágćtasta skemmtun og
sćmileg afţreying en lítiđ meira en ţađ.
Ég hugsa ađ ég nćli mér nú í eina Alex
Cross bók ţví ég hef alltaf haft gaman af
góđum reyfurum. - Guđjón
Helgason
|
|