Almost Famous  



Hvað gerist þegar skynsamur, en jafnframt saklaus, 15 ára drengur lendir í villtri hringiðu rokksins snemma á áttunda áratugnum? Þetta er þema nýjustu myndar Cameron Crowe sem gerði síðast hina vinsælu mynd, Jerry Maguire. Raunar byggir Crowe sögu sína að einhverju leyti á eigin reynslu en á þessum árum vann hann sem ungur blaðamaður fyrir tónlistartímaritið Rolling Stone. Aðalsöguhetja myndarinnar, leikin af nánast óþekktum leikara, krækir einmitt í starf hjá sama blaði með því að þykjast vera eldri en hann er. Verkefni hans er að fylgja „næstum frægri" hljómsveit í fjóra daga og skrifa grein fyrir blaðið en síðan þarf hann að skila sér heim til að fara í próf. Óhætt er að segja að þessi ferð eigi eftir að reynast æði viðburðarík og kemst söguhetjan í kynni við nýjan heim þar sem er að finna áfengi, eiturlyf, hljómsveitarmenn með mikið sjálfsálit og síðast en alls ekki síst grúppíur. Almost Famous er mynd sem grípur áhorfandann ekki strax en vinnur á jafnt og þétt. Þetta er hjartnæm og á köflum fyndin saga sem fjallar bæði um drauma og þroska ungs drengs sem og hinn taumlausa lífsstíl rokks og róls. Samtölin eru skemmtileg, leikstjórnin til fyrirmyndar og leikurinn með afbrigðum góður. Þrátt fyrir að engin stórstjarna leiki í myndinni er leikarahópurinn mjög traustur en á meðal leikara er Óskarsverðlaunahafinn Frances McDormand. Djúp og innihaldsrík mynd sem höfðar til allra aldurshópa.
- HÖJ