|
|

Í marga áratugi hafđi Stanley heitinn Kubrick
unniđ ađ ţví ađ koma á hvíta tjaldiđ smásöguni
Supertoys Last All Summer Long eftir rithöfundinn
Brian Aldiss. Nokkru síđar komast hann ađ ţeirri
niđurstöđu ađ skynsamlegast vćri ađ biđja
vin sinn til margra ára, Steven Spielberg, um ađ
leikstýra myndinni og taldi Kubrick hann í
raun henta betur í ţađ hlutverk. Ţađ var
hins vegar ekki fyrr en eftir andlát Kubrick
sem Spielberg tók ađ fullu viđ leikstjórnartaumunum
og fór ađ vinna ađ handritinu. Afrakstur ţessa
langa ferils má nú loks sjá í fullgerđri
kvikmynd um gervigreind og vélmenni. Myndin
fjallar um vísindamann í ótilgreindri framtíđ,
leikinn af William Hurt, sem tekur ţá ákvörđun
ađ ţróa vélmenni sem getur komiđ í stađ
barna og elskađ foreldra sína jafn heitt og
raunveruleg börn. Tćkni tengd vélmennum hefur
augljóslega fariđ mikiđ fram ţegar hér er
komiđ sögu og er ljóst ađ möguleikinn er
fyrir hendi. Ungum hjónum sem eiga afar veikan
son er faliđ ađ annast tilraunaútgáfuna og
í framhaldi af ţví taka málin óvćnta
stefnu. Tilvísanir í ćvintýriđ um Gosa eru
miklar í ţessari heillandi sögu um vélmenniđ
sem vill verđa raunverulegur drengur. Hinn ungi
leikari Haley Joel Osment (The Sixth Sense, Pay
it Forward) leikur vélmenniđ unga, sem nefnist
David, og fer hann afar vel međ ţetta erfiđa
hlutverk. Ţessi ţrettán ára gamli strákur
hefur sýnt enn og aftur fram á hversu góđum
tökum hann hefur náđ á leiklistinni og verđur
mjög spennandi ađ fylgjast međ honum á nćstum
árum og áratugum enda er um gríđarlegt efni
ađ rćđa. Ađrir leikarar standa sig einnig mjög
vel og má ţar helst nefna Frances O´Connor í
hlutverki móđurinnnar og Jude Law (The
Talented Mr. Ripley, Enemy at the Gates) í
hlutverki gígaló vélmennis sem veit hvernig
á ađ fara ađ ţví ađ láta konum líđa
vel. Myndin er óneitanlega nokkuđ sérstök og
varla hćgt ađ hugsa sér betri leikstjóra en
Spielberg til ađ koma ţessari sögu til skila.
Ekki síđan E.T. eđa í hinni átakanlegu
Schindler´s List hefur hann náđ jafn föstum
tökum á viđfangsefni sínu og náđ ađ skila
ţví á jafn áhugaverđan og grípandi hátt
til áhorfenda. Hinar flóknu siđferđilegu
spurningar sem vakna í myndinni eru settar fram
á vandađan hátt í bland viđ áhugaverđa
dramatíska fjölskyldusögu um ást og
tilfinningar manna og mögulega véla. Međ ţessu
verki sínu hefur Spielberg einnig stađfest ţađ
sem Kubrick hefur haldiđ fram fyrir andlát
sitt. Leikstjóri E.T. vćri augljóslega rétti
mađurinn til ađ fćra ţetta nútímaćvintýri
Gosa í kvikmyndabúning. - Guđjón
Helgason
|
|