|
|
The Ruins | |
![]()
|
Vinahópur er í fríi í Mexíkó þar sem þau kynnast þýskum ferðamanni sem hyggst hitta bróður sinn, fornleifafræðing sem fann óuppgötvaðan píramída í frumskógum landsins. Háskólanemarnir ákveða að fara með þjóðverjanum og fá tækifæri til að vera með þeim fyrstu til að skoða þennan forna stað. Þegar þau koma þangað hitta þau fyrir innfædda íbúa frumskógarins. Þeir innfæddu drepa einn ferðalanginn og neyða hin til að fara upp á píramídann. Brátt kemur í ljós að eitthvað er ekki eins og það á að vera en þau komast ekki í burtu meðan hinir innfæddu standa vopnaðir fyrir utan. Það má segja að The Ruins sé nokkuð týpísk unglingahrollvekja sem byggist að hluta á bregðuatriðum og að hluta á ógeði. Það fer ekki mikið fyrir persónusköpun eða vel skrifuðu handriti enda er hér um formúlumynd að ræða. Persónurnar eru dæmigerða, tvær pirrandi hræddur og vælandi stelpur, einn nokkuð heimskur og hvatvís karlmaður og einn karlkyns læknanemi sem bregst við af skynsemi og þekkingu við fáránlegum aðstæðum. Fyrir utan læknanemann þá er manni nokkuð sama um hvernig fer fyrir persónunum. The Ruins er þó ekki algjörlega ónýt, það er ekkert sem segir að ekki sé hægt að hafa gaman af formúlumyndum. Hún er vel gerð og hugmyndin frumleg. Þetta er fín kvöldskemmtun svo lengi sem maður búist ekki við einhverju rosalegu.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com