|
|
Sweeny Todd | |
![]()
|
Það eru alltaf góðar fréttir þegar Tim Burton sendir frá sér nýja mynd enda fátítt að hann klikki. Hann tekur hér fyrir söngleik Stephen Sondheims og útfærir í kvikmynd. Íslenskir menningarvitar ættu að kannast við verkið enda var það sett upp í Íslensku óperunni fyrir ekki svo löngu. Fyrir þá sem misstu af þeirri frábæru uppfærslu má rekja söguþráðinn í stuttu. Sweeny Todd snýr aftur til London eftir margra ára fangelsisvist í Ástralíu. Hann hafði verið ranglega fangelsaður af hinum illa Turpin dómara. Turpin hafði losað sig við Sweeny Todd svo hann gæti stolið eiginkonu hans. Þegar Sweeny Todd snýr aftur kynnist hann frú Lovett sem gerir verstu kjötbökur í London og fær þær fréttir frá henni að eiginkona hans hafi tekið inn eitur og að Turpin dómari hafi ættleitt dóttur hans og haldi henni nú læstri inni á heimili sínu. Sweeny Todd verður vitaskuld vitstola af reiði og saman með frú Lovett hyggur hann á hefnd sem felur í sér fjöldamorð og uppbyggingu á veitingastað frú Lovett. Það er Johnny Depp sem fer með aðalhlutverkið í myndinni. Samstarf hans og Tim Burton hefur ætíð verið náið og yfirleitt er Depp upp á sitt besta þegar hann vinnur með Burton. Hann er alveg hreint frábær í hlutverki Sweeny Todd og sýnir á sér alveg nýjar hliðar, a.m.k. datt undirrituðum ekki í hug að hann gæti sungið svo vel. Í öðrum hlutverkum má finna Helenu Bonham Carter sem frú Lovett, Alan Rickman sem Turpin dómara og síðan bregður Sacha Baron Cohen fyrir í skemmtilegu aukahlutverki. Öll standa þau sig vel í sínum hlutverkum. Rickman er sérlega góður sem Turpin dómari og Cohen er mjög skemmtilegur sem Signor Adolfo Pirelli, keppinautur Sweeny Todd. Það er ekki annað hægt en að lofa þessa uppfærslu hans Tim Burton. Stíll hans sem leikstjóra fellur afar vel að söngleiknum, líklega hefðu fáir aðrir getað fært þetta stykki á hvíta tjaldið. Tim Burton plús Sweeny Todd er eldfim blanda, virkilega skemmtileg kvikmynd, vel sungin og aldrei leiðinleg.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com