|
|
Stóra planið | |
![]()
|
Stóra planið í leikstjórn Ólafs Jóhannessonar var frumsýnd nú á föstudaginn. Myndinni hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu síðan það kom í ljós síðasta sumar að Sopranos stjarnan Michael Imperioli færi með hlutverk í myndinni. Auk sjónvarpsstjörnunnar bandarísku þá bregður fyrir nánast öllu íslenska leikaraliðinu fyrir í myndinni í misstórum hlutverkum. Það er hins vegar Pétur Jóhann Sigfússon sem fer með aðalhlutverkið í myndinni en hann leikur mislukkaðann handrukkara, Davíð að nafni. Það lýtur ekki út fyrir að frami hans í undirheimunum eigi eftir að verða mikill enda alls ekki starfi sínu vaxinn. Það má þó segja að hann detti í lukkupottinn þegar hann kynnist Haraldi Haraldssyni, sem leikinn er af Eggerti Þorleifssyni. Haraldur gefur í skyn að hann sé einhvers konar mafíuforingi og sannfærist Davíð að þar sé kominn enginn annar en Mexíkó-Haraldur, alræmdur glæpaforingi sem talinn var dúsa í fangelsi í Mexíkó. Þessi vitneskja færir Davíð aukna vikt í undirheimunum en leggur hann einnig í aukna hættu. Pétur Jóhann fer ágætlega með sitt hlutverk, ég á a.m.k. erfitt með að ímynda mér einhvern annan sem hefði getað staðið sig betur. Stjarna myndarinnar er þó án efa Eggert Þorleifsson. Hann á mörg frábær atriði og svo oft fær hann mann til að veltast úr hlátri. Leikstjórinn virðist hafa fengið flest alla leikara landsins til að koma fram í myndinni, jafnvel þó aðeins sé um smáhlutverk að ræða. Í einu besta atriði myndarinnar fer Laddi t.d. á kostum þegar hann leikur sjálfan sig. Stóra planið er ósköp saklaus og skemmtileg mynd. Handritið er vel skrifað og myndinni er vel leikstýrt. Auga leikstjórans fyrir smáatriðum er greinilega næmt en það eru þessi smátriði sem gera myndina þetta skemmtilega.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com