|
|
Scaphandre et le papillon | |
![]()
|
Þvílík mynd. Hún fékk ein Óskarsverðlaun og tvenn Golden Globe verðlaun og gleymist seint eða aldrei. Sannsöguleg mynd um mann í blóma lífsins (Mathieu Amalric). Lífið leikur við ritstjóra tískublaðs þegar hann fær heilablóðfall og lamast allur – en hugsunin er áfram skýr. Annað augað er hans eina tjáning. Með hjálp talkennara, sem aftur og aftur fór með stafrófið og lamaða hetjan deplaði þegar rétti stafurinn kom, skrifaði hann bók sem þessi mynd er byggð á, um það hvernig er að vera fangi í sínum eigin líkama. Samband föðurins (Max von Sydow) við soninn er ógleymanlegt. Tónlistin hæfði myndinni sérstaklega vel. Leikararnir skiluðu hlutverkunum með prýði. Bíógestirnir virtust gagnteknir þegar þeir gengu út í raunveruleikann. - Katrín Guðjónsdóttir
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com