No Country For Old Men
 

 

No Country for Old Men er nýjasta mynd Coen bræðra, en síðasti áratugur hefur ekki verið þeim sérlega gjöfull, eftir að þeir slógu í gegn með Fargo árið 1996. Nú eru þeir komnir aftur á svipaðar slóðir, sérkennileg glæpasaga, að þessu sinni í suðurríkjum Bandaríkjanna, ekki norðurhlutanum eins og í Fargo, en það er þó margt svipað með myndunum.

 

Svartur húmor bræðranna er á sínum stað og söguþráðurinn góður. Þetta er fyrst og fremst spennumynd og í raun sem slík er hún feykilega vel heppnuð, mun meira spennandi en margar svokallaðar spennumyndir síðari ára. Leikararnir eru enn fremur frábærir, Javier Bardem sem illmennið, Josh Brolin sem ógæfusama hetjan og Tommy Lee Jones sem lögreglumaðurinn. Helsti gallinn við myndina er lengdin, hún er rúmlega tveir tímar en hefði virkað betur undir tveimur tímum. Á heildina litið er þetta þó besta mynd Coen bræðra í langan tíma, frábær kvikmyndagerð.

 

María Margrét Jóhannsdóttir

 



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com