|
|
Lars and the Real Girl | |
![]()
|
Lars and the Real Girl er mynd sem höfðar eflaust ekki til allra, en skilur hins vegar mikið eftir sig. Þetta er ekki gamanmynd, eins og halda mætti við fyrstu sýn, þó hún sé vissulega fyndin á köflum. Þetta er hins vegar fyrst og fremst ljúfsár saga um ungan mann með geðröskun sem á erfitt með að bindast tilfinningaböndum eftir að hann missti foreldra sína og stofnar því til platónsks ástarsambands við uppblásna brúðu. Ryan Gosling sýnir frábæran leik í aðalhlutverkinu og aðrir minna þekktir leikarar standa sig einnig með prýði. Leikstjóranum Craig Gillespie tekst að byggja upp mikla samúð með aðalpersónunni og segja þessa áhrifamiklu sögu með lágstemmdum og heillandi hætti.
|

Til
baka á
forsíðu
Kvikmyndir.com