La vie en Rose
 

La Vie en rose, eða La Mome eins og myndin kallast einnig, er heillandi mynd um ævi hinnar dáðu söngkonu Edith Piaf.

Það er leikkonan Marion Cotillard sem fer með hlutverk söngkonunnar á eftirminnilegan hátt. Það má með sanni segja að hún umbreytist í Edith Piaf því leikkonan er nær óþekkjanleg í þessari kvikmynd. Hún sýnir mikil tilþrif sem hin stórbrotna persóna sem Edith var og ætti sannarlega skilið að fá tilnefningu til Óskarsverðlauna í vor. 

Þessi mynd er vel gerð sem lætur engan ósnortinn. Tónlistin er að sjálfsögðu dásamleg og sagan dramatík af bestu gerð. 

María Margrét Jóhannsdóttir


 



Til baka á forsíðu Kvikmyndir.com